Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1885, Blaðsíða 109
Um bakteríur (sóttnæm smá-
kvikindi m. m.).
Fyrirlestur haldinn í Reykjavík í febrúarmánuoi 1885.
af
landlækni G. Schierbeck.
Jeg skal að þessu sinni leyfa mjer að beiðast þess,
að þjer, mínir heiðruðu áheyrendur, verjið litlum tíma
til að hlusta á orð min, með því að jeg óska að gefa
yður nokkurt yfirlit yfir smákvikindi þau, sem nefnd
eru útlendu nafni „bakteríur“. Eins og kunnugt er,
hafa smákvikindi þessi vakið mikla eptirtekt á sjer
hin síðustu árin. jpau eru talin með hinu lægsta,
sem lif hefir í náttúrunni, en eru allmerkileg sökum
þess, hvað þau vinna, eigi að eins í náttúrunni sjálfri
og mörgum iðnaðargreinum, heldur og að þvi, er
snertir heilbrigði og allt lif vort mannanna og alidýra
vorra. En áður en jeg fer að tala um þýðingu kvik-
inda þessara fyrir oss yfir höfuð, á það vel við, að
gjöra fyrst grein fyrir því með fáum orðum, hvað felst í
orðinu Ybakteríura. Við þetta orð skiljum vjer örsmá
kvikindi, sem opt og einatt eru að eins eitt frumkorn
(celle), og sem eigi verða sjen með berum augum, held-
ur að eins i stækkunargleri, en sem geta hreyfzt úr
stað, og það einmitt með miklum hraða og Qöri. pað