Platon og Aristoteles. Tv8ir kapítular úr sógu heimsp kinnar. Eptir Grím Thomsen. II. Aristoteles. Það er eigi ómerkilegt, að tveir sinnar aldar mestu meiui, hver i sinni r.öð, Aristoteles og Alex- ander mikli, skyldu báðir vera upprunnir i Make- doníu. Aristoteles var fæddur 384 f. Chr. í borginni Stageira í héraðinu Chalkidike og er þvl opt nefnd- ur Stageirítinn, Faðir hans var Nikomachos, lækn- ir og vinur Amyntasar Makedoníu konúngs, og hef- ur Aristoteles tileinkað föður sínum þá siðafræði, sem kölluð er Eþika Nikomacheia. Móðir hans hét Faistis; forfeður hans töldu sig í ætt við læknaguð- inn Asklepios. Eptir fráfall foreldra sinna fór Ari- stoteles, eins og þeirra var siður, er eitthvað vildu nema, til Aþenuborgar sem þá var nokkurs kon- 1