r Nokkrar athuganir við Islendingasögur.1 Eptir Jón prófast Jónsson. III. Um ttmenn Rlypp.t herttix d fslandi. Þar sem dr. Björn M. Olsen minnist á upp- runa Hyndluljóða í ritgjörð sinni: »Hvar eru Eddu- 1) í greinunum í Tím. XVIII er misprentað á 193. bls. 17. línu að ofan: 87473 fyrir 87374, og 24. 1. a. o. (= 11. 1. a. n.): (874 eða) 873 fyrir (873 eða) 874. Athugagrein hr. H. Kr. Friðrikssonar við ritgjörðmína um Eirík blóðöx þykist eg ekki þurfa að svara; því að dr. Björn M. Olsen hefir þar tekið af mér ómakið (þótt hann viki meir frá orðum Egilssógu en eg hefi gjört), enda stendr það eigi á miklu, hvort Egill Skallagrímsson hefir komið 1, 2 eða 3 árum fyr eða seinna til Eiriks konungs í Jórvík; hitt er aðalatriðið, að hann hafi komið þangað meðan Aðalsteinn var á lifi, eða fyrir 941, og í þeirri grein er eg 6ammála Egilssögu, og hefi stutt frásögn hennar með þvi að vísa til >Vita St. Cadroéi og leiða rök að þvi, að Cadroe hafi lika hitt Eirik í Jórvlk á slðustu rikisárum Aðalsteins (eða um 939940). Með því að útlendir fræðimenn rengja tímatal vorra beztu sagnamanna í fornöld, er mikilsvert að finna því stuðning í fornum útlendum sagnaritum.