99 slengt saman í munnmælura, þar sem hin fyrri er kölluð »Þórunn« í Hauksbók og Melabók,1 og óljóst bergmál af því nafni gæti »Jórunn« í Þórðar sögu verið.* Þótt Özurar Arngrímssonar sé eigi getið annarsstaðar en í Þórðar sögu, þá er ekkert því til fyrirstóðu, að hann hafi getað verið uppi um það leyti, sem sagan til vísar, og frásögnin um hann geti verið rétt í aðalatriðunum, og sama má segja ura fleiri menn, sera við söguna koma, svo sem þá bræðr Asbjörn og Orm, Þorvald í Engihlíð, Þórhall í Miklabæ, Kálf á Kálfsstöðum o. fl. Sumt í sög- unni nær reyndar engri átt (þar er t. d. nefndr »Jón«(!) bóndi að Hvassafelli í Norðrárdal á 10. öld), enda hafa hínar mörgu fyrírsátir Özurar og ýms fleiri atvik allmikinn ýkjublæ, auk þess sem út- koma Þórðar er tengd við víg Sigurðar konungs slefu, er eigi fær staðizt tímans vegna (Safn I. 370 71) en þrátt fyrir þetta þarf* sagan eigi að vera tilhæfulaus, fremr en t. d. Svarfdæla saga og Há- varðs saga ísfirðings, sem settar eru saman eptir ó- ljósum og ýktum munnmælum, en hvíla þó á sögu- legum grundvelli. En hvað sem annars má segja um áreiðanleg- leik Þórðar sögu, þá munu varla geta leikið tvimæli á því, að ættartölurnar f'rá Miðfjarðar-Skeggja og Guðrúnu Klyppsdóttur i niðurlagi hinnar meiri sögu 1) Svona hafa fornir sagnamenn slengt saman nöfnuDum á foreldrum Alfifu, móður Sveins komings Knútssonar (Ælfhelm og Wulfrun), er hún er kölluð »dóttir Alfrúns jarls« (Fms. XI. 200). 2) Auðvitað getr það eigi verið nema óvis tilgáta, að Jór- unn i Þórðar sögu sé sama kona og Þórhildr i Þorleifs þætti (og Svarfdælu), en mjög er það titt i ýktum sögum, að menn sé rangnefndir.