I Tilraunir Danakonunga til að selja Island. Eptir Jón Stefánsson. Um það leyti er Hinrik áttundi kom til ríkis, var ófriðaröld á íslandi. Tyche Vincent, sendiherra Dana, segir í bréfi til Jakobs fjórða Skotakonungs, dags., London 11. okt. 1507, að hann hafi kvartað munnlega við Hinrik sjöunda, sérstaklega ytír því, að fyrir 6 árum hafi Englendingar brotið upp læsta kirkju á Islandi og rænt konungsskatti, sem var geymdur þar. Tyche virðist enga rétting mála sinna fengið hafa, því i janúar 1508 ritar Hans konungur mjög hart bréf frá Helsingjaborg til Englakonungs um þetta. Hinrik áttundi byrjar ríkisstjórn sína með því að nema úr lögum, 21. janúar 1510, fiski- og verzl- unarbann gegn Englendingum við ísland, sem faðir hans hafði gengið að. Er auðséð á orðalaginu að Englaþingi þótti þetta mikils vert. Jókst nú verzl-