112 valdi sínu heima fyrir, og borgaði tolla. Hinrik fór undan í flæmingi, og lét John Backer semja fyrir sína hönd í Höfn. En er hann hafði gert frj0 v\0 Frakka 02: unnið Skota, kvað hann upp úr með, að skaðabæturnar væru bæði ofháar og órókstuddar. *Skaut hann skuldinni á embættismenn Dana, er vildu banna þegnum sínum viðskipti við Islendinga, sem væru þeim til góðs. Sendi þá Kristján Sören Norby til að berja á Englendingum og skyldi hann reisa virki gegn þeim bæði í Vestmannaeyjum1 og á Bessastöðum. Arin 151718 var Kristján i peningaþröng og tekur hann þá það til bragðs að hann sendi Hans Holm, er áður er getið, og var bæjarstjóri i Hol- stein, kaupmaður og skipaútgerðarmaður, til Hol- lands og Englands í þeim erindum að selja eða veðsetja Ísland. Hið lágþýzka bréf, er Holm hafði meðf'erðis til minnis, er svo merkilegt, að jeg set það hér: »Erindi Hans Holms viðvíkjandi íslandi«. »Fyrst á hann að bjóða Hollendingum í Amst- erdam og Waterlandsche (o: norðurhollenzku) bæj- unum, líka Antwerpen, eins og erindisbréf hans sýnir, landið Island að veði fyrir 30,000 gyllinum eða að minnsta kosti 20,000. Ef Hollendingar vilja alls ekki taka þessum boðum, þá skal hann-, er hann kemur til Englands, bjóða konungi þar landið fyrir 100,000 gyllini eða að minnsta kosti 50,000. Hanti á ekki að bjóða það, fyr en rætt hefr verið um önnur erindi hans. A konungr að gefa Dana- konungi sannarlegt skuldarskjal, svo að hans hátign 1) Sbr. Jón Egilsson um bardaga i Vestmannaeyjnm 1514 <Safn til s. ísl. I. 45. bls.).