114 þess*.1 Aptur ritar hann frá Antwerpen 13. sept. 1519 til Kristjáns annars:2 »Viðvíkjandi boðum yðar hátignar um Island hef jeg lagt mig í Kma og fram- króka að megni, bæði í Amsterdam og hér. Johan Benninck hefr hjálpað mér og verið við. Hef jeg þó engu á leið komið. Amsterdamborgarar berja við fátækt sinni og vilja þó fegnir, með öðrum borgum, en geta ekki komið sér saman um það, eins og áður er ritað. Hér vilja borgarar heldur ekki ganga að því. Mundi jeg nú fara til Hollands aptur að semja við þá, en má ekki fara úr Bra- bant, og veit Jens hvað því veldur. Hef jeg ritað Jóhanni Benninck ýtarlega um málið, hvernig bezt fer á að semja við þá enn á ný. Hann mun efa- laust gera það, sem unnt er að gera í því málic. Johan Benninck var ráðherra í Haag, merkis- kaupmaður, sem Niðurlandsstjórn opt leitaði til i peningaefnum. Amsterdam var eini bærinn á Hol- landi, sem hafði snefil af verzlun á íslandi 1518, svo ekki var von að Antwerpen vildi eiga við kaupin, en minni bæirnir voru hræddir um, að Amsterdam bolaði þá út, þó þeir væru með í kaup- unum. Ráða má af bréfunum, hve fast Kristján sótti kaupin. Nú víkur sögunni til Englands. Erindisbréf Krístjáns til Hinríks áttunda, sem Holm hefr með- ferðis, er dagsett 4. marz 1518. Segir í þvi að hann eígí að semja viðvíkjandi spellvirkjum Englendinga á íslandi. Auk þess hafði hann skjal meðferðis, og eru þar nefnd mál þau er hann, »vor elskaði Jo- 1) Heinrich Behrmann: Kong Kristian den Andens Historie, Khavn, 1815 2 Deele II 108. 2) S. st. II. 123.