Gróðurrækt í Danmörku. Eptir Einar Helgason. Haustið 1894 sigldi eg til Danmerkur og stund- aði nám í rúm tvö ár við garðyrkjuskólann á Vil- vorde við Charlottenlund og var þar þangað til síð- astliðið vor að eg lauk burttararprófi. Var eg styrktur til þessa náms af Búnaðarfélagi Suðuramts- ins og af hinu íslenzka Garðyrkjufélagi, ennfremur af hinu kgl. danska garðyrkjufélagi og af »Det Classenske Fideicommis«. Flyt eg öllum þeira fé- lögum fyrir það virðingarfullt þakklæti. Vilvordeskóli hefir staðið í 23 ár, er hann stofnaður af St. Nyeland, sem enn er formaður skól- ans. Námið er bæði verklegt og bóklegt, vetur og sumar, að undanskildu sumar- og jólaleyfi. Bókleg kennsla er i öllum greiuum garðyrkjunnar: trjárækt, matjurtarækt og blómrækt, og ter hún fram nær eingöngu með fyrirlestrum. Ennfremur er kennt grasafræði, efnafræði, eðlisfræði, jarðvegsfræði, á-