125 burðarfræði, dýrafræði (einkum skorkvikinda), land- og hallamælingar, reikningur og teikning. Við skól- ann eru 5 fastir kennarar. Skólatíminn er tvö til þrjú ár. Verklegt próf fer fram á haustin og bók- legt á vorin. Skólinn er undir umsjón kennslumála- ráðaneytisins og nýtur hann styrks af ríkissjóði. Nemendur borga 25 kr. um mánuðinn og fá fyrir það kennslu, húsrúm, ljós, hita, og middegisverð í skólanum. Nærri mun láta að kostnaður fyrir hvern nemanda sé 600 kr. um árið, ef sparlega er áhaldið. Nemendatala hefir nú seinni árin verið kringum 30. Land það, er skólinn á, er 34'/« dagslátta; eru þar ræktaðar flestar þær plöntur, er þýðingu hafa í garðyrkjunni, og er þar mikið safn af þeim; mun óhætt að segja að af fíeiri ára blómjurtum finnast hvergi í Danmörku eins margar tegundir og afbrigði (Varieteter). Þar er sérstaklega mikil áherzla lögð á ræktun ávaxtatrjáa vegna þess að gjörð er mikil krafa til garðyrkjumanna þar að lútandi. Matjurta- garðurinn er sérlega vel yrktur og fállegur; er hann um l1/* dagslatta, og þó eru kartöplur og fóðurrófur ekki ræktaðar í honum, heldur á landi þar nálægt, sem leigt er undir skólann. í sumarleyfinu '95 var eg á Borgundarhólmi. Þar er ýmislegt að læra viðvíkjandi trjárækt og öðru fieiru; vil eg því minnast lítið eitt meira á það. Eyjarbúar hafa á hinum siðari árum sýnt mik- inn dugnað i jarðrækt og yfir höíuð í öllum land- búnaði. Skilyrði fyrir jarðræktinni eru þó okki eins góð þar eins og annarstaðar í Danmörku að Vestur- og Norður-Jótlandi undanskildu. Eyjan ligg-