135 breiðum í botninn, 3 íet að ofan og 3!/j4 fet á hæð. Efnið er tekið úr skurði, sem grafinn er ut- an við. Svo er ofan á þenna garð, eftir honum miðjum, plöntuð (jallfura með tveggja feta millibili. Jafnframt þessu er eitt hið fyrsta verk að leggja vegi og byggja lítinn jurtagarð kringum íbúðar- húsið. Gróðrarreitnum er skipt í fjóra parta; fyrsta ár eru í einn þeirra fluttar fræplönturnar, og í annari fjórðapart er sáð lúpipum, til þess að bæta með því jarðvegínn. Þær eru plægðar niður, þegar þær eru í blóma. Helmingurinn, sem þá er eftir, er látinn standa auður, en graflnn eða plægður (brak). Næsta ár er svo sá hluti af gróðrarreitn- um, sem lúpínurnar voru í, tekinn fyrir fræplöntur. Aður byrjad er að planta trjánum út á gróðr- arteiginn, er farið að undirbúa jarðvegÍLin tveimur til fjórum árum áður, og er það gjört með ýmsu móti. Þvi betur og þvi dýpra sem jörðin er losuð, því betur þrífast tién. En af'tur á hinn bógiun er um að gjöra að kosta ekki til þess meira en nauð- synlegt er, til þess að geta fengið sem mest land undir ræktun. Sumstaðar er byrjað á þvf að sviða lyngið af', og er svo jörðin plægð 4 þumlungu djúpt, kostar það vaualega í akkordsvinnu 5,S0 kr. fyrir dagsláttima. Jörðin er svo látin liggja í tvö ár og er svo herfað með hnífveltiherfi (»Knivtromleharve«, »Tallerkenharve«) og kostar það vanalega á dag- sláttuna 1,15 kr Það rótar jarðveginum vel um og losar hann. Eptir það fær flagið að liggja í eitt eða tvö ár og þá f'yrst byrjar hin verulega aðvinnsla. Jarðvegurinn er þá plægður 1418 þuml. djúpt (Reolplöjning) og kostar það uni 2,30 kr. á dag- aláttuna, er hann svo látinn Hggja enn eitt ár, þar