154 til Sviþjóðar og kom svo aptur til Askov seint í september og var þar fram yfir nýjár. I Danmörk eru 4 aðaltilraunastöðvar i gróður- rækt, tvær eru á Sjálandi, i Tystofte og Lyngby, og tvær á Jótlandi, i Askov og Vester-Hassing. Þessar tilraunastöðvar eru kostaðar af ríkissjóði, þær heyra undir landbúnaðarráðaneytið, og hefir hið kgl. danska landbúnaðarfélag umsjón með þeim fyrir hönd ráðaneytisins. Aðalformaður allra þess- ara tilrauna var rikiskonsúlent P. Nielsen í Tystofte (dáinn síðastliðið haust). Hann byrjaði á þessum tilraunum i Tystofte við Skelskör árið 1886, og frá því ári má telja að nýtt tímabil byrji í Danmörk, hvað plönturækt snertir, og þá um leið á öllum Norðurlöndum. I flestum löndum Norðurálfunnar eru gjörðar ýmsar tilraunir til eflingar framförum í landbúnaði, en hvað gróðurrækt snertir, hafa Danir komist einna lengst í þvi að sameina það verklega við það vis- indalega. Gróðrartilraunir sínar byggja þeir á vís- indalegum grundvelli, en haga fyrirkomulaginu svo að árangurinn verði svo Ijós og skilmerkileg- ur, að það verði bein leiðbeining fyrir hvern og einn bónda, som áhuga hefir á að rækta jörð sina sem bezt, og af því stafar það einmitt, að Danir eru komnir svo langt í gróðrartilraunum sínum. Nú sækja menn þangað, ekki einungis frá Norðurlönd- um, heldur einnig frá suðlægari löndum álfunnar, til þess að læra af' þeim. Sama árið og tilraunastöðin var stofnuð í Tys- tofre var komið upp útibúi (Filial) í Askov við Vejen undir forustu ríkiskonsúls Fr. Hansens, og hélzt það óbreytt þar til 1893, að það var gjört að sjálfstæðri tilraunastöð, og er Fr. Hansen framvegis