157 og eru rik af stívelsi. Þar á roóti er minni áherzla lögð á fínar matarkartöplur. Gjörðar eru tilraunir roeð, hve þétt skuli setja þær, og eru til þess not- uð tvö afbrigði: Rickters Imperator og Suttons Magnum Bonum, eru ýmist hafðir 8, 12 eða 16 þuml. milli þeirra í röðunum, en æflnlega 1 alin milli raðanna. Einnig eru reyndar ýmsar stærðir útsæðiskartaplna og hvort heppilegt sé að skera þær sundur og eru höfð til þess hin sömu afbrigði. C. Aburðartilraunir: 1) misjafnlega mikið af húsdýraáburði. 2) húsdýraáburður raeð viðbót af ýmsum tegundum af tilbúnum áburði. 3) tilbúinn áburður i samanburði við húsdýraáburð. 4) plöntuáburður (Gröngódning). Þar sem eingöngu er hafður tilbúinn áburður, er árlega borið á dagsláttuna eins mikið af köfnun- arefni, íosforsýru og kalí eins og er í 5786 pundum af húsdýraáburði, sem er meðaltal af því áburðar- magni, sem árlega er borið á dagsláttuna. (A 1 tunnu lands er borið 10000 pund). Þar sem tilbúinn á- burður er borinn á með húsdýraáburðinum er að eins hafður helmingur af hvoru fyrir sig. Til plöntuáburðar eru einkum þessar þrjár plöntur ræktaðar: lúpínur, sinnep og bóghveiti (Boghvede). Langmest eru lúpínurnar notaðar og eru þær plægð- ar niður, þegar þær eru farnar að blómstra. D. Tilraunir með fóðurjurtir, bæði grös og aðrar, eins árs og fleiri ára jurtir. Hverjar tegund- ir helzt beri að rækta og á hvern hátt. í hverjum hlutfóllum fræblandanir eigi að vera o. s. frv. Eg hefl gjört það með vilja að setja hér að eins það helzta úr þessum ákvæðum og einungis