162 þörf. Það mun í engu landi, þar sem annars er gjört tiltölulega svo mikið að jarðabótum sem hér, vera jafnlítið gjört að því að losa og undirbúa jarðveg- inn. Ef rétt væri, þá þyrftum vér að gjöra það meira en aðrar þjóðir, vegna þess vér höíum svo lítinn sumarhita. Vér þurfum að gjöra allt það, sem vér getum, til þess að greiða fyrir efnaummynd- un i jarðveginum, og það gjörum vér mest með þvíað róta honum og losa Tiann, einnig með því að leiða vatn burt þaðan, sem ofmikið er af þvi, og i þriðja lagi, með því að bera kalk ú, þar sem jbrðin er fd- tk af þvi. Vert væri að reyna að plægja grasrótina nið- ur, herfa og valta vel, bera þar í áburð og láta svo vaxa af sjálfu sér. Vér þurfum að komast upp á að nota plóg meira en vér gjörum. A síðari ár- um hefir mönnum gefist betri kostur á því en fyr, nefnilega síðan skólastjóri Torfi Bjarnason fór að búa þá til og selja, því hans plógar eru léttari og betri en þeir, sem áður hafa verið notaðir hér á landi. Það er svo mikið undir því komið, að verk- færin sé góð, að vel væri gjörandi að kaupa létta og góða plóga frá útlöndum, til þess að mönnum gefist kostur á að bera þá saman við þá, sem hér eru dú. Eg hefi áður, í ísafold, bent á plóginn ¦>Original nr. 4.«., sem fæst hjá A. Jakobsen, Plovfa- briken Fraugde pr. Marslev Danmark; kostar hann 36 kr. Lausa skera getur maður keypt fyrir 2,50 kr. hvern, er gott að hafa þá til vara. Fyrir plógnum er oft hafður eiun hestur og sumir plægja með kúm, og hafa þá tvær fyrir. Sumstaðar á Jót- landi sá eg menn hafa kýr fyrir plógi, og það þótt þær væru með stórum júfrum, og sumir fátæklingar láta hest og kú ganga saman fyrir plógi og vögn-