164 kosinn úr hverju amti af búnaðarfélögum, og á hann að vera búsettur í amtinu. Forsetaráðið stjórn- ar aðgjörðum félagsins samkvæmt lögum þess og eftir ákvæðum aðalfundar. Það er landbúnaðar- ráðaneytinu til aðstoðar og upplýsingar f öllum landbúnaðarmálum, og hin mörgu búnaðarfélög í Danraörku njóta á ýmsan hátt hins sama af hinu kgl. danska Landbúnaðarfélagi. Búnaðarmá) vor íslendinga eiga einnig að kom- ast í þess konar horf. Hið væntanlega »Búnaðar- félag íslands* á að gefa sig við öllu þvi, sem eflt getur búnaðinn hér á landi, bæði með því að efla framfarir í landinu sjálfu og eins verzlun og við- skipti við önnur lönd. Það á að verða löggjöf vorri til aðstoðar við öll þau mál, er lúta að bún- aði. Með því rnóti er trygging fengin fyrir, að lítt athuguð lagafrumvörp um búnaðarmál verði ekki samþykkt á alþingi. Það á, í samvinnu við stjórn- ina, að hafa ettirlit með þeim opinberu stofnunum, sem eru í landinu og eiga að vera búnaðinum til eflingar. Það á að efla þekking landsmanna á búnaðinum og gjöra það, meðal annars, með þv! að 8Já um útgáfu á góðum bókum, er fara í þá stefnu, og eins á það að «já um, að fyrirlestrar i búnaði verði haldnir fyrir bændum og leiðbeiningar gefnar á ýmsan hátt. Þeir, sem unna framförum íslands. eiga að styðja að þvi að hér verði stofnað búnaðarfélag fyrir land allt, það er eini vegurinn, til þess að samheldni og festa komist i framfaraviðleitni vora. Vér getum verið vissir um, að »Búnaðarfélag ís- lands* fær öfluga aðstoð hjá hinu kgl. danska Landbúnaðarfélagi, svo framarlega sem það vill leita hennar. Vér eigum alls ekki að biðja það um