Oddur lögmaður Sigurðsson og Jón biskup Vídalín. Eftir Jon Jónsson. Aldaraótin 1700 hafa lengi verið talin eitt með hinum aumustu timabilum í sögu íslands, og það með réttu. Frámunaleg harðindi af nattúrunnar hendi og óþolandi verzlunarbönd og kúgun af hendi hinna dönsku kaupmanna höfðu lagst á eitt til að draga hug og kjark úr þjóðinni. Enginn dirfðist að hefja handa og hrinda at sér farginu. Menn létu berast viljalaust og mótstöðulaust með straumnum. Þótt sending Gottrups lögmanns til Kaupraannahafn- ar árið 1701 í þarfir landsmanna í fijótu bragði virð- ist bera vott um einhver framfaratilþrif eða endur- bótarkröfur, þá er því samt ekki svo varið ef betur er að gætt. Öll þau bænarskjöl og umkvartanir, er hann hafði meðferðis frá hendi alþýðunnar, bera þess