170 þeirra. PAll Vídalín var nokkuð stórgeðja. einbeitt- ur og óvæginn við tjandmenn sína og málagarpur hinn mesti. Biskupar voru þeir Jón Vidalin í Skálbolti (16981720) og Björn Þorleifsson A Hólum (1697 1710). Jón Vidalin var skapmaður mikill eins og aðrir frændur hans, þrekmenni til sálar og líkama, svo hvervetna sópaði að hoimm, en um leið drottn- unargjarn og ráðrikur. Björn biskup lét minna til sín taka, enda kemur hann lítið við mál manna á 18. öld. Auk þessara manna voru hér uppi sýslumenn ýmsir, sem brátt komust inn í ýmsar málaflækjur og beittu hinum mesta ofstopa og yfirgangssemi. Þeim lærðist það furðu fljótt. Arið 1707 bætist nýr maður í hópinn, einna harðskeyttastur og ofsafengnastur þessara allra. Þegar hann komst hér til valda var eins og brugðið væri upp herfánanum og öllu lenti saman i hina grimmustu orustu. Fáum árum eftir komu hans var hér allt i báli og brandi. Það var eins og Sturl- ungaöldin væri risin upp á ný. Hann spanaði og erti alla upp A móti sér, og það voru fAir mAlsmet- andi menn hér A landi um hans daga, sem honum ekki lenti í illdeilum við. Þessi maður var Oddur lögmaður Sigurðsson. Oddur lögmaður var af höfðingjum kominn í báðar ættir. Faðir hans var Sigurður prestur Sig- urðarson á Staðastað, Oddssonar biskups Einarsson- ar, en móðir Sigriður HAkonardóttir frA Bræðratungu, Gíslasonar lögmanns HAkonarsonar. Hann var fædd- ur i6ó2 og ólst upp í föðurgarði í auð og allsnægt- um og við hið mesta dAlæti, því hann var einkason- ur foreldra sinna. 15 Ara gamall útskrifaðist hann