176 ýmsar sakir og þar á meðal fyrir aðgjörðir hans í máli Jóns nokkurs Hreggviðssonar, er sagt var að drepið hefði böðulinn. Stefndu peir honum fyrir dóm þeirra Árna Magnússonar og Páls Vidalins, er skipaðir höfðu verið til að íhuga ástand l.mdsins og leggja úrskurð á ýms mál landsmanna. Dæmdu þeir embætti af Sigurði lögmanni .og 15 rikisdali í málskostnað til Odds. Enn tremur lét Oddur dæma embætti af Páli Torfasyni, sýslumanni í Snæfellsnes- sýslu, fyrir meðferð á strandgózi, og tók af honum og Snæbirni syni hans töluvert fé. Þetta hvorttveggja var árið 1708.1 Árið eftir stefndu þeir Oddur og Beyer Jóni Magnússyni sýslumanni í Strandasýslu fyrir dóm lög- réttunnar. Gafu þeir honum það að sök, að haun í hjónabandi sínu hefði fallið i hórdómi með kvenn- snift nokkurri og vakið með þessu stórt hneyksli, og skjóta þvi nú til réttar, hvort hann ekki skuli hafa fyrirgjört embætti sínu og öðrum fleiri náðarveiting- um konungs. Hafði hann Aður fyrri verið prestur og þá gert sig sekan í sama broti bg.misst fyrir það prestsskap. Féll nu dóraur lögréttunnar á þá leið, að honura skyldi vikið frá embætti af fulltrú- unum.2 Eftir að þeir félagar höfðu vikið Jóni Magnús- syni frá embætti, tók Oddur undir sig Stapaumboð, er Jón hafði hafði haft að léni. Auk þess gerðist hann nú og sýslumaður í Snæfellsnessýslu. Þetta hvorttveggja, bæði sýsluna og umboðið, tók hann undir sig án þess að leita staðfestingar á því hjá konungi og hélt í mörg ár. Var uppgangur Odds mikill í þá tíð og mátti enginn á móti spyrna. Hann 1) Arb. Espólíns VIII, kap. 79. 2) Lögþingisbók 1709, XX.