188 fljótast, en stóð þó strax upp aftur og lót sem hann hefði enga lyst til að dvelja eður hvíla í því húsi, og vildi ei sitja heldur gekk mjög fljótlega og svo sem í nokkrum þönkum um gólt. Samt lét lög- maðurinn bera þangað nokkuð franskt brennivín og gott öl og bauð það biskupinum og hans fólki, hvað og biskupinn þáði og drakk vel af hvorutveggja. Þá spurði biskupinn lögmanninn að hvar það nýja kamers væri, sem lögmaðurinn hefði látið þar byggja. Lögmaðurinn sagði það væri hér strax hjá og væri sitt eigið kamers sem nú lægi fullt með sundurlaus bréf og dókument, sem lögmaðurinn þyrfti við höndina að hata opin og aðdeild meðau hann væri að skrifa, þar fyrir gæti hann ei biskup- inum þar inn boðið, þar hann hefði komið svo ó- vart. Biskupinn svaraði þá lögmanninum: »Inn þangað vil jeg endilega Jcoma; er þar cancelliið?"1 Lögmaðurinn bað biskup ei ganta sig með svo stór- um orðum og sagði að sú litla stofa væri eitt ringt skritkamers, en ekkert cancelli. En á meðan þetta skeði þá lét lögmaðurinn tilreiða það fallegasta kamers, er til var hér á garðinum, sem var port- loftið, eitt alþiljað og með 2 hurðum læst hús yfir frammibæjardyrunum. Þar var tilbúin sæng með þeim beztu efnum lögmaðurinn til haf'ði, með und- irdýnum, yfirsæng, sparlökum með víðara. Þegar þetta var nú fullgjört og biskupinn sagðist hafa lyst til að hvíla si^- og leggjast til sængur, þá sagdi lögmaðurinn að það væri honum til þénustu og hann væii sér af hjarta veikominn til þess lítils, sem lögmaðurinn kynui honum með að þéna, svo 1) Kancellíið var ein af stjórnardeildunum í Kaupmanna- híifn.