194 svaraði lögmaðurinn: »Nokkur hestabýtti skal herra biskupinn vel fd og svo mörg eg get gjört til hans þénustu*. Þá sagði biskupinn aftur: »Eg tla að fá þér alla meidda, þreytta og skemda hesta*. Strax eftir þetta veitti lögmaðurinn biskupinum og nokkr- um af hans selskab te og franskt brennivín með víðara. Skömmu þar eftir kvaddi séra Þórður biskup- inn og lögmanninn og reisti burtu. Síðan gekk bisk- upinn út í kirkjuna á Narfeyri og tafði þar nokkra stund, og á meðan varð lögmaðurinn at þreytu og svefni svo yfirkominn, að hann gat sér varla uppi haldið. Samt stríddi Iögmaðurinn móti því að fara að sofa, heldur þjáði hann sig til að vaka og vera hjá biskupinum. Fylgdi síðan biskupinum til borðs og máltiðar inn í litlu baðstofuna. Þar var svo fenginn matur, og var máltíðin tilbúin sem bezt að mögulegt var. En með því biskupinn nokkrum sinn- um um máltíðina heimtaði franskt brennivín að drekka, þá mátti lögmaðurinn líka drekka það með honum, og því varð lögmaðurinn yfirkominn af víni, þreytu og svefni, svo hann varla gat setið uppi út máltíðina. Biskupinn var þá og um máltíðina svo þreyttur og ölvaður, að það sýndist sem hann be- svímaði1 lítið eftir máltíðina, svo að hans eigin menn studdu hann i litlu baðstofuna. En að nær liðinni máltíðinni sló biskupinn höstugt í borðið og slengdi saman servettinum, skerborðum .og fötum, sem stóðu á borðinu, og kastaði því að lögraanninum og und- ir borðið og spillti matnum um borðið. Síðan gekk lögmaðurinn samstundis burt úr því húsi og skildist 1) Fengið yfirlið.