Næsta rit Tennyson's var fögur söguljóð um kvenn- frelsismálið »The Princess« (»Kóngsdóttirin«), sem fyrst kom út 1847, og síðar opt og talsvert umbreytt til batnaðar, fyrst í 3. útgáfunni 1050, og var þar hinum yndislegu, hrífandi smákvæðum á kaflamótum aukið inn í; 1850 varð í fleirti merkisár fyrir Tennyson: hann ljet þá fyrst koma út minningarljóð sin yfir Hallam »In Memoriam«, er hann hafði byrjað á 7 árum áður, og þótti mörgum sú bók bera langt af öllum öðrum ritum hans; komu þrjár útgáfur af þeirri bók það ár, og fjórða útgáfan ári síðar. 13. jt'mi 1850 gekk hann að eiga Emily Sehvood, stúlku af gömlum og góðum ættum, og nokkrum mánuðum síðar var hann gjörður að hirðskáldi, »poet laureate«; það er gömul hirðstaða eða öllu heldur nafnbót sem veitt er á Englandi æfilangt einhverju frægu skáldi; er ætlast til þess að þeir yrti tækifæriskvæði er eitthvað sögulegt ber við i konungsættinni, og fá þeir að launum nokkur hundruð krónur og hálftunnu af góðu sherrýi til að halda við andagipt sinni. Hafði Words- worth skipað þann sess næstur á undan. Tennyson fór nú að ferðast með konu sinni til Frakklands og Italíu. Var hjónabandið hið farsælasta, og hefur Tennyson víða niinnzt hennar i kvæðum sinum. Þau hjónin eignuðust soninn Hallam árið 1852, og er hann nú (1903) jarl i Astralíu. Arið 1853 keypti Ten- nyson fallegan búgarð, Farringford i eynni Wight (Vætt) og bjó þar iengst af lir þessu. Síðar eignaðist hann líka búgarðinn Aldworth í Suney. A þessum árum voru mikhr ajsingar í Norðurálfunni. Napoleon 3. hafði rofið eið sinn sem forseti og brotizt til keisaratignar, og voru margir á Englandi og þar á meðal Tennyson, sem ekki trúðu honum meir en svo og svo, þrátt fyrir öll hans vináttuhót1; vinátta Englendinga og Kússa var og á völt- 1) Við höfum eignast svo trúan liamlainann, aö fjandinn