Työ kvæði eftir Yictor Hugo. Skáldið frakkneska, sem er höfundur tveggja eftirfar- andi kvæða, Victor Marie Hugo,* er Htt kunnur hér á landi, og er hann þó óefað að öllu samanlögðu hið mesta skáld, sem Frakkland hefur átt. Hann er fæddur j.6 Febr. 1802 í Besancon. Faðir hans var einn af fyrstu sjálfboðaliðum þjóðveldisins frakkneska og varð síðan liðsforingi undir yfirforustu Napóleons; flæktist þá Hugo ungi allvíða með foreldrum sínum og nokkuð af barnæsku sinni lifði hann á Italíu og Spáni. Varð hann þvi snemma fyrir margs- konar áhrifum, sem höfðu mikil og varanleg áhrif á ímyndunarafl hans og tilfinningalíf. Móðir hans var af hug og hjarta fylgjandi Bourboningum og rammkaþólsk í anda og í þeim sama anda uppól hún son sinn. Atti fyrst eftir ósk föður hans aö setja hann í »offíséra« skóla, en ekki varð af þvi og bar það til þess, að skáld- skapargáfa Hugós kom afarsnemma í Ijós og vildi hann ekkert verða nema skáld; er til marks um það, að hann 15 ára gamall kepti til skáldverðlauna akademíisins frakkneska með fræðikvæði eiiiu, og þótt hann bæri ekki verðlauninúr býtum, þá hlauthann samt lofsorð fyrirkvæðið; orti hann nú hvað af hverju meira svo menn fóru að veita honum mikla eftirtekt og Chateaubriand,** eitt af höfiðskáldum Frakklands, sem þá vóru, kallaði hann »l'enfant sublime* (barnið háfleyga). i822gafhann ») frb. Hý<,'.». *) frb. 8j«tébriang.