7á þeir kunni nú að vera eigi allfáir, er lítið er kunnugt um þennan mann, enda þótt mentamenn sjeu, að því er kallað er, enda er iítið um hann ritað á vora tungu, að því er mjer er kunnugt, og lítt í samanhengi. Þormóðiir Torjason, er kallaði sig Thormodus Tor- fæus og var svo kallaður af lærðum mönnum á þeim tíma, er sú var venjan þá, að breyta nöfnum sínum eptir latínskri tungu, var sonur Torfa sýslumanns Erlendssonar, sýslumanns í Múlaþingi, Magnússonar á Núpi. Móðir Erlends sýslumanns var Guðrún Erlends- dóttir, bónda á Stóruvöllum Jónssonar, en móðir Guð- rúnar var Guðný, dóttir Torfa í Klofa Jónssonar, en afi Torfa í Klofa var Torfi Arason, er fjekk nðalskaparbrjef hjá Kristjáni Danakonungi I., 30. nóv. 1450, riddaranafn- bót Og hirðstjórn norðan og vestan á Islandi. Torfi dó í Björgvin sið sumars 1459, og hjelt virðingu og nafn- bótum til dauðadags. Móðir Torfa sýslumanns, en síðari kona Erlends föður hans, var Þórd s, dóttir Henriks Gerkens, er um- boðsmaður var Þingeyraklausturs um nokkur ár (til 1577) og síðar (1580) sýslumaður i Strandasýslu; hann hafði og Strandajarðir, og bjó í Svignaskarði. Hann dó ;582. Hann var þýzkur læknir. Kona hans var Jarþrúður Bjarnadóttir á Fellsenda, Sumarliðasonar. V'ar Henrik Gerkens miðmaður hennar. Þórdis giptist síðar Jóni Oddsyni í Reykjavík. Þau áttu fjórar dætur; ein þeirra var Ulfhildur, er átti síra Stefán Hallkellsson á Seltjam- arnesi. Einn sona þeirra var síra Björn á Snæfoksstöð- um, faðir Sigríðar, konu síra Jóns Halldórssonar i Hitár- dal, móður Finns biskups i Skálholti. Úlfhildur dó 1694, 84 ára gömul. Torfi sýslumaður Erlendsson var fæddur á Skriðu- klaustri 1598, eptir lát föður síns, er dó sama árið. 1626 kvæntist hann Þórdísi Bergsveinsdóttur, prests A