120 baráttu um óákveðinn tíma, sem hlyti að verða til óbætanlegs hnekkis og niðurdreps fyrir bæði andlegar og verklegar framfarir í landinu. Þegar um þetta tvennt hefði verið að velja, þá er auð- sætt hvorn kostinn E. A. hefði tekið. Þetta verður og enn ljós- ara, þegar menn líta á niðurlagsorðin i ritgerð hans. Þar segir svo (bls. 19): »Margar af þeim lagabótum, sem nú var bent til, er að vorri hyggju enn þá nauðsynlegra að fá fljótlega, heldur en breytingar á stjórnarskránni. Vjer höfum mikið að gera og margt að laga í þjóðfjelagi voru, og þurfum til þess eigi svo litinn tíma. Hið nauðsynlegasta verður því einkum að vera í fyrirrúmi, en það er reyndar, að ætlun vorri, að gera samgöngurnar sem greiðastar, bta alvinnuvegina, búnaöinn, sjávarútveginn, verzlunina 0. s. frv., en sjer í lagi og umfram allt að auka og efla menniun alþýðunnar, sem er hinn eiginlegi grundvöllur undir framförum og velgengni þjóðfjelagsins.« Margur Þingeyingur og Eyfirðingur hefði sjálfsagt gott af að athuga þessi orð hins framliðna öndvegishölds Norðurlands, því þótt stjórnspekingum skjóti nú upp hjá þeim sem gorkúlum, þá er opt valt að treysta á nýgræðinginn. Það hefur líka heldur en ekki sýnt sig, að sumir þessara stjórnspekinga, sem með ham- ramlegum tilberalátum vaða á bæxlunum í blöðunum, eru ekki á marga fiska, þar sem þeir (eins og t. d. G. F. í »Dagskrá«) hafa ekki einu sinni aflað sjer svo mikillar þekkingar á stjórnarskránni, hvað þá heldur á málinu yfirleitt , að þeir viti, að aðra og flóknari aðferð þarf að hafa til að breyta henni en einföldum lögum, sem maður þó skyldi halda að hver óbrotinn smalastrákur á Islandi vissi mí orðið, jafnlengi og búið er að þvæla stjórnar- skrármálið þar. Skoðanir Einars sál. Asmundssonar vóru bvggð- af á dálítið traustara grundvelli en gaspur slikra fáfræðinga. V. G. Danzigar-súkkulaðið. (Frönsk smásaga frá dögum Napóleons míkla). Um lok maímánaðar 1808, fám dögum eptir að Danzig hatði verið tekin herskildi, fjekk Lefebvre marskálkur einhverju sinni snemma morguns orðsending um, að keisarinn vildi hafa tal af honum samstundis.