H3 byrjað þegar á 17. öld; en ekki vita menn þó, hvenær Danir fóru fyrst að flytja okkur tóbak. 1630 er tóbak ekki talið, þar sem getið er um vörur þær, sem fluttar voru frá Danmörku til íslands, og ekki heldur 1655, eptir þvi sem Skúli Magnússon landfógeti segir i Deo regi, patrm (1768, bls. 379). Um miðja 18. öld er aptur öll tóbaksverzlun við íslendinga komin í hendur Dönum, því svo segir í konungsbrjefi 27. apríl 1751 til Rantzaus greifa, stiptamtmanns á íslandi, að ekki megi flytja til íslands annað presstóbak en það, sem búið væri til í verksmiðju einni í Kaupmannahöfn, og ekki mættu íslendingar hafa annað tóbak meðferðis (L. f. ísl). Jeg hef fyrst rekið mig á skýrslur um tóbaksflutninga til Islands x743 °g skal jeg færa hjer til pundatöluna bæði þetta ár og nokkur önnur ár til samanburðar: 1743 1784 1806 1816 x849 6560 <S? 53800 Í8 76160 <t£ 66064 ® 79967 & Hjer er allt tóbak talið, og er skýrsla þessi tekin eptir skýrslum um landshagi á íslandi I. Menn vita líka, að minnsta kosti að nokkru leyti, hve mikið fiutt var af tóbaki til íslands 1750. íslenzka verzlunarfjelagið kvartar yfir þvi 17 51, að íslendingar kaupi minna af dönsku tóbaki en áður hafi tiðkazt. Áður hafi verið keyptar þar 5600 kistur af presstóbaki árlega, en nú aðeins 233, og af þessum 533 kistum, sem hefðu verið sendar til Islands árið áður, væri helmingurinn óseldur (L. f. ísl. II, bls. 7374). í »Samlinger til Handels-magazin for Island« I er talið hve mikið var flutt af pípum og tóbaki til íslands 1786 og 1787, og er skýrslan á þessa leið: Tylftir af löngum pípum Tylftir af stuttum pipum Presstóbak ("8?), hjerumbil Rullutóbak » Skozkt tóbak » Presstóbak var haft til munntóbaks, eins og áður er getið um, en rullutóbak og skozkt tóbak til neftóbaks, og vantar því alveg reyktóbak, en menn munu hafa reykt samskonar tóbak og menn tóku i nefið og jafnvel upp í sig. Munntóbak hefur jafnvel verið reykt framundir þenna dag, og jeg hefi talað við mann úr Rangárvallasýslu, sem segist hafa reykt þar munntóbak úr járnpípu um 1880, og mun vera fremur rammt. Aldrei hef jeg sjálfur vitað þessa reykingaraðferð á Norð- urlandi. 1 verzlunarskýrslunum frá íslandi fyrir 1890, i Stjórnartiðindunum 1891, er skýrsla um tóbaksfiutning til íslands: Neftóbak 31259 % Reyktóbak 22463 kr. Munntóbak 56597 'SS Vindlar 20094 kr. og sjest af henni að miklu meira er flutt nú af tóbaki til Islands en á 18. öld og um miðja þessa öld. Nú hafa verið taldar ýmsar tegundir tóbaks, sem fluttar voru til 1786 1787 139 159- 466 34- 33880 29040. 30000 24000. 16000 14450.