i49 Mýra-, Borgarfjarðar- og Kjósar- sýslur) færi þá á mis við þann hagnað, sem af frjettaþráðarsambandinu mætti hafa. Því lítil lík- indi eru til, að landið geti í nánustu framtíð komið sjer upp land- þráðum af eigin rammleik, og engin minnsta von um styrk til þess frá öðrum þjóðum. En hjer við bætist og annað. Það er sem sje síður en svo, að enn sje nokkur vissa fyrir því, að nokkuð verði af því, að sæsími verði lagður til íslands. Það er algerlega undir því komið, hvort nægilegt fje fæst til hans frá útlendum þjóðum. Nú hefur verið farið fram á, að England legði fram 1,080,000 kr. (£ 60,000) til sæsímans, en enska stjórnin kvað vera því fremur andvig. Það er því alveg undir þingi Englendinga komið, hvort þessi fjárveit- ing fæst. En áhugi þingsins á málinu er aptur mestmegnis kom- inn undir því, hve mikið verzlunarfjelög og fiskiveiðafjelög leggja að þvi með að veita fjeð. En nú hafa einmitt hjá enskum verzl- unar- og fiskiveiðafjelögum komið fram sterkar raddir í þá átt, að þvi að eins væri nokkur hagsmuna von fyrir þau af fyrirtækinu, að sjeð yrði um, að allur meginhlutinn af ströndum Islands kæm- ist um leið í frjettaþráðarsamband við útlönd. En væri að eins um einn stað að ræða, væri ensku fje varla til þess kostandi. Það gæti því vel orðið 'óllu frjettaþráðarfyrirtakinu að falli, ef Islend- ingar sýndu lítinn áhuga á að koma upp hjá sjer landþráðum jafn- hliða sæsíma. En sýni þeir aptur eindreginn áhuga í þessu efni, er mikil von um fjárstyrk frá Englendingum, og fengist hann, má álíta fyrirtækinu borgið. Það er því vonandi, að íslendingar sýni nú bæði hyggindi og rögg af sjer og geri eitthvað sjálfir til að greiða fyrir landþráðum og þar með málinu í heild sinni1. »Sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi far«. Valtýr Guðmundsson. Áður en próförk af þessari grein var lokið, hafa mjer borizt íslenzk blöð frá Rvík, og virðast þau líta nokkuð reykvíkskum augum á málið og vera furðu nærsýn. En þröngsýni sumra þeirra stafar þó vafalaust fremur af því, að þau hefur vantað nægar upplýsingar um málið, en að nokkur til- hneiging til hreppapólitfkur hafi villt þeim sjónir.