152 heiptar-norðanstormur voða-bitur gnauðar þar um gróðurlausar auðnir. Komdu með mjer! Leið mín liggur j'fir ljósgræn engi í skjóli hlýrra dala blómum vaxin, þegar þú ert með mjer, þá er bjart og misturlaust á fjöllum, J>á er vor í dölum, sól í sveitum. II. As to the distant moon. (þýðing.) Eins og marinn mána myrkblár fjarran þráir og sem heimskaut hnattar horfir að leiðarstjörnu, svo er minn hugur og hjarta horfinn til þín, vina! En eins og mar og máni mega um aldur ei hittast, og eins og himinsær heiðblár heimskaut og stjörnu skilur, þannig um eilifð alla okkur er stíað sundur! / Þ Islenzk orðabók. JÓN PORKELSSON: SUPPLEMENT TIL ISLANDSKE ORD- B0GER. Tredje Samling. Rvík 189097. Dr. J. Þ. hefir áður gefið út tvö allstór orðasöfn sem viðbæti við íslenzkar orðabækur. Hið fyrsta