i58 því næst eru í ritinu: I. Kennaratal 1847J^97 me^ rnyndum af öllum hinum föstu kennurum skólans frá byrjun hans; II. Kandídatatal eptir stafrofsröö og þar jafnframt skýrt frá fæðingardegi, prófeinkunnum, hvenær þeir hafi útskrifazt af prestaskólanum og lífsstöðu hvers eins nú; III. skýrsla um prestaskólann skólaárin 18956 og 18967 og IV. Flokkur eptir Valdimar Briem, sunginn á 50 ára afmæli skólans 1. okt. 1897. Á titilblaðinu er mynd af prestaskóla- húsinu. ÁRSRIT GARÐYRKJUFJELAGSINS 1898. í því er um »hnúðberandi galtartönn* eptir fyrv. landlækni Schierbeck, »Hvers vegna vex ekki í garðinum mínum?« eptir skólastjóra Jónas Eirtksson, »Reynir, Birkt, víðir,« eptir landfógeta Arna Thorsteinsson, »Sáðreiturinn« eptir búfræðing Abalstein Halldórsson og »Garðyrkjuverkfæri,« »Blómin« og »Garðstunga« eptir garðyrkjuffæðing Einar Helgason. petta rit ætti sannarlega að komast »inn á hvert einasta heimili*, og helzt ætti að kenna börnunum það eins og kverið. Vjer viljum skora á alla þá, sem hafa ekki enn fengið sjer það, að kaupa sem allra fyrst alla 4 ár- ganga þess; þeir kosta ekki nema 75 aura (20 au. hver einstakur), en eru margra króna virði fyrir hvern þann, sem hefur skynsemd til að læra af þeim. HELGI HÁLFDÁNARSON: STUTT ÁGRIP AF PRJEDIKUNARFRÆÐI. Rvík 1896. Þó bók þessi sje ekki nema 84 bls. á stærð, þá er mikið á henni að græða. Hún er prýðilega samin bæði að efni, niðurskipun og orðfæri; en mest þykir oss þó varið í þann mannúðaranda, sem lýsir sjer í henní. Hún heldur því fram, að embætti prestsins sje »ekki embætti fyrir damingar - innar, heldur embætti fy rirgefningarinnar,* hin eiginlega köllun hins kennimannlega embættismanns sje »að boða fyrirgefning, frið og frelsi« (bls n); presturinn eigi »að hræra, en ekki að hræða« (bls. 80) og »aldrei fyrirdæma« (bls. 82). Brennisteinsprestarnir hefðu gott af að kynna sjer þessa bók og vfir höfuð er hún hinn bezti leiðarvísir fyrir hvern prest sem er. ¦ STEFÁN B. JÓNSSON: STJARNAN. Litið drsrit til fróðleiks og leið- beiningar um verkleg málefhi. I. ár. Winnipeg 1897. Ársrit þetta er eiginlega íslenzkt almanak handa Vesturíslendingum, en auk þess eru í því ýmislegar rit- gerðir og uppdráttur af Winnipegbæ. Þar er meðal annars ritgerð um frysti- hús og íshús og leiðbeining um bygging þeirra, um straumferjur, um metramál, um ýmiskonar mælingar og margt fleira, sem gott er að vita. Yfir höfuð er eigi alllítill fróðleikur í ritinu, en búningur þess er allt annað en góður. Máltð á því er mjög óvandað og víða herfilegt, og pappír og prentun í lakasta lagi. ÍSLAND OG ÍSLENZKAR BÓKMENNTIR ERLENDIS: FORNMENJAR OG NÚTÍÐARHEIMILI Á ÍSLANDI (»Fortidsminder og Nutidshjem paa Island«, Khöfh 1897) heitir bók, sem höfuðsmaður í herliði Dana Daniel Bruun hefur skrifað. Er í henni fyrst stutt lýsing á landinu og náttúru þess og því næst frásögn um ferð hans a íslandi 1896. Þá kemur fróðleg lýs-