i6o forenings Aarsskrift« 1898, og er hún prýdd mörgum ágætum og vel völdum myndum frá íslandi og nokkrum frá Færeyjum. Er mjög sennilegt, að sú rit- gerð veki löngun hjd ýmsum Dönum til að ferðast til Islands, enda er nú i ráði, að heill hópur af þeim ferðist þangað í sumar. RAFMAGN Á ÍSLANDI. ínorska blaðinu »Verdens Gang« stóð í vetur svo látandi grein: »Frönsk tímarit hafa uppgötvað nýtt land, er »vinna« mætti, seni sje Island. Hin forna sagnaey á sem sje yfir kynjamiklu vatnsafli að ráða. Það mundi vera nægilegt til þess að framleiða allt það Ijós og allan þann hita, sem allir íbúar landsins þurfa, og meira en það. Fossarnir Ullarfoss, Gullfoss og og Goðafoss geta einir þrír framleitt meira afl en hinir stærstu fossar í Norður- álfunni. Er áætlað að allt vatnsafl landsins sje 1000.000,000 (þúsund miljóna) hestafla. Þó menn nú sleppi svo sem tveim núllum, þá er samt nóg eptir. Reykjavík gæti fengið hita og ljós frá fossi, sem er ekki nema 5 kílómetra frá bænum. Auk þess er hinn eldbrunni jarðvegur landsins auðugur af dýrmætum málmum, sem vinna mætti með rafmagni. Þá væri og Island ágætlega vel lagað fyrir veðurfræðisstöð, ef þangað lægi frjettaþráður frá Norðurálfunni. Þó ekki væri nema fyrir daglegt líf, mundu stormboðar þaðan hafa afarmikla þýð- ingu, en jafnframt mundu og vísindín græða stórkostlega á nýjum veðurfræðis- athugunum þaðan. Rannsóknir á jarðskjálftum væru sjálfsagðar, og nóg tæki væru þar á að athuga norðurljósin«. VEL BOÐIÐ. Tveir skozkir kaupendur Eimreiðarinnar og íslandsvinir, mál- fræðingurinn W. A. Craigie, M. A. í Oxford (Danemead, 226 Iffley Road) og presturinn Rev. /. A. Milne i París (13 Quai d'Orsay), hafa óskað þess getið í riti voru, að þeim væri ánægja í því, ef þeir Islendingar, sem kynnu að koma til Oxford og Parísar, vildu heimsækja þá. V. G. Til minnis. EIMREIÐIN vill minna útgefendur islenzkra bóka á, að hún getur þeirra rita einna, er henni eru send, nema ástæða þyki til að geta þeirra til viövörunar. Hún vill og mælast til, að ritin sjeu send henni jafnskjótt og þau koma út.