io8 binda eina sígræna lyngþúfu sinn við öræfín«. En þó eru þeir fáir, sem þetta gera, en því síður betur. Sá maður, sem þetta gerir, vinnur til þess, að um hann sé kveðið og sungin yfir honum þessi vísuorð skáldsins : Pví skal þér æ um aldur ilmur úr grasi. Öndvegisþjóðir heimsins. Um langan aldur hefur England skipað öndvegissess heimsins í öllum fimm heimsálfunum. Bretaveldi er nú nál. 13 miljónir ferhyrningsmílna á stærð, þ. e. meir en fimtungur alls lands á hnettinum. Stærð ríkjanna (Balfour og Asquith kalla þau nú »states« eða ssister states«) í Bretaveldi er mismunandi, sem nú skal greina. Kanada................. 3,745,000 ferh. mílur 6,500,000 íbúa Ástralía................. 2,974,000 4,400,000 Indland................. 1,766,000 300,000,000 Bandaríki Suður-Afríku . . . 1,238,000 6,400,000 Nýlendur í Vestur-Afríku . 486,000 16,500,000 Austur-Afríka og Uganda . 398,000 7,500,000 Newfoundland og Labrador 162,000 200,000 Bretland og írland....... 121,000 45,000,000 New Zealand............ 104,000 900,000 Egiptaland, Súdan, Ceylon, Vestindisku eyjarnar o. fi. 1,500,000 27,000,000 alls. . 12,494,000 ferh. mílur 414,400,000 íbúa þannig býr fjórðungur alls mannkynsins í Bretaveldi. Hefur aldrei nokkurt ríki verið jafnvíðlent og jafnmannmargt fyr né síðar. Nú er að því að gæta samt, að af þessum aragrúa er aðeins hver sjöundi maður hvítur maður, sem nú skal greina.