III og efnafræðislegum iönaði. Þegar Englendingar tefla um verzlun sína og um veldi sitt yfir hafinu, þá tefla þeir um líf sitt. Asquith1) forsætisráðgjafi, sagði á þingi 12. nóv. 1908, að floti Englands yrði að vera io°/o sterkari en flotar hinna tveggja næstöflugustu ríkja samanlagðir. Árið áður, 16. des. 1907, sagði Haldane, hermálaráðgjafi Asquiths, að England mundi varla geta risið undir því að bjóða byrginn Pýzkalandi, með rúmum 60 milj- ónum manns og Bandaríkjunum með alt að irx) miljónum, því 44 miljónir ættu ekki hægt með til lengdar að vera 160 miljónum manns ofurefli á sjó, ef til streitu væri haldið. Hinn 16. marz 1909 sagði Balfour, foringi stjórnarandstæðinga á þingi: »Vér get- um ekki lengur drambað af, að vér ætlum okkur að vera jafh- sterkir tveim næstvoldugustu ríkjunum á sjó, því efi leikur á, hvort vér getum haldið áfram að vera jafnsterkir og eitt ríki«. Svo er mál með vexti, að England er farið að byggja nýja bryndreka, sem kallast Dreadnought, (sá sem ekkert hræðist), eftir fyrsta bryndrekanum. Pau eru langtum stærri en önnur herskip (nær 20,000 tons), bygð úr miklu þykkra stáli, og hafa stærri og öflugri fallbyssur. Balfour sagði, að Pýzkaland væri í gríð og ergju að smíða þessa heljardreka og mundi í desember 1910 eiga 13 Dreadnoughts á sjó, en England að eins 10, og í júlí 1911 líklega 17 heljardreka móti 14 enskum, og í apríl 1912 gæti Pýzkaland átt 21, eða 25, heljardreka. Asquith og sjómálaráðgjafinn neituðu þessu. England væri lika mikill oijarl í minni bryndrekum. Peir játuðu þó, að Pýzka- land gæti átt 11 Dreadnoughts í maí 1911 gegn 12 enskum. Og Asquith lét á sér skilja, að Pýzkalandsstjórn hefði leynilega flýtt fyrir herskipasmíðum sínum og væri enska stjórnin hissa á því. Sir Edward Grey, utanríkisráðgjafi Englands, sagði á þingi 30. marz 1909, að Éngland yrði að smíða sér spánnýan flota, til þess að geta haldið áfram að drotna á hafinu. Vér neyðumst til þess, til að bjarga lífinu, því samkvæmt flotalögunum eignast Pýzkaland nú 38 Dreadnoughts, hinn voldugasta flota sem nokkru sinni heftr á sjó komið. Pýzkaland er nú farið að geta smíðað bryndreka á jafnstuttum tíma og England. Nýlendur Pýzkalands gefa svo sem ekkert af sér í saman- burði við hin auðugu lönd Breta um allan heiminn, og England J) Ask-viðr, norrænt nafn úr norrænum hluta Englands, Yorkshire.