Alþýðublaðið - 26.05.1964, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 26.05.1964, Blaðsíða 16
Fundu leifar af nanns- líkama á Eyjafjallajökli Reykjavík, 25. maí - GO UM helgina fundust leifar af «nannslíkama á Eyjafjallajökli á- samt giftingarhring úr gulii. — ■Hringurinn lá um 50 metra frá leif unum. Það var 10 manna flokkur úr björgunarsveit Slysavarnadeildar- innar Ingólfs í Rcykjavík, ’sem fann þessar leifar. Flokkurinn var ,við fjallföngu og klifuæfingar í .jöklrnum og hafði með sér allan mauðsynlegan útbúnað í þessu. ..skyni, Þegar leiðangursmenn voru á ferð á skriðjöklinum, sem sgengur litúr aðaljoklinum fyrir 15 mannd hópur nátíúruskoðara í BYRJUN júnímánaðar er væntanlegur hingað til lands 25 ttnanna hópur frá Bandaríkjunum. 'Eru þetta ýmiskonar náttúruunn- ■endur aðaliega áhugamenn um fugla. Mun hópurinn, sem nefnir •eig „Portland Society of Natural ■History" dveljast hér um hálfs- ■wiánaðar tíma og ferðast um land fð á vegum Ferðaskrifstofu ríkis- íns en ferðaskrifstofan annast fikipulagningu á ferðum, sem þess •um á liverju ári og eru þátttak- cndur yfirleitt mest Bretur og “Bandaríkjamenn, ofan Jökultungurnar fundu þeir þar lærlegg úr manni ásamt hæl- beini og einum leðurskó. Um 50 metra frá beinunum fundu þeir svo giftingarliringinn, sem lá ber ofan á sandlagi á jöklinum. í hringnum var áletiun, sem sýnir að viðkomandi hefur gift sig 29. ágúst 1928. Leiðangursmenn gerðu ítarlega leit á svæðinu, en fundu ekkert annað markvert. Þess má geta að jökullinn er þarna á hreyfingu, allur uppbrotinn og sundursprung- inn. » Rannsóltnarlögreglunni í Reykja vík var afhent það sem fannst á jöklinum, en hún hefur enn ekki getað áttað sig á áletrun, sem er í hringnum auk ártalsins. Ómögu- legt er að gera sér grein fyrir hve langan veg þessar leifar hafa bor- ist með jöklinum og hvar slysið hefur upprunalega átt sér stað á jöklinum. Jökullinn, sem fundur þessi varð á, nefnist Gígjökull og gengur norður úr tindi Eyjafjallajökuls. Leiðangurinn frá björgunarsveit- inni gekk upp á jökulinn að aust- anverðu og niður að vestan, en það var á niðurleiðinni, sem beinin óg hringurinn fannst. Síðást er vitað til að þarna liafi orðið slys árið 1952 eða 1953, þeg- ar Albatross flotaflgvél frá liern- um á Keflavíkurflugvelli hrapaði á jökulinn. Enginn maður komst þá af, en úr flugvél sást að spor lágu frá slysstaðnum og norður á skriðjökulinn. Frekari eftir grennslan bar svo engan árangur. Eitt sem bendir eindregið til að líkamsleifar þessar séu runnar frá þessu slysi, er dagsetningin í hringnum, en þar er raðtala mán- aðarins á undan mánaðardeginum sjálfum eins og tíðkast með banda ríkjamönnum. Þá eru þar ein- hverjir stafir, sem orðnir eru máðir og ógreinilegir svo fá verð- ur leturgrafara tii að skýra þá upp og lesa úr þeim. tMHMUMHHHMMMMMMKt KVENFÉLAG Alþýðu- I flokksins í Reykjavík býður öldruðu fólki á skemmtun næst komandi mánudags- kvöld, 1. júní klukkan 8 í Iðnó. Þessi skemmtikvöld fé- lagsins hafa verið mjög vin- sæl og eftirsótt á undanförn- um árum, og vonar félagið að eldra fólkið skemmti sér einnig- vel þetta kvöld. Fólk er beðið ‘að hringja, og fá upplýsingar og aðgöngumiða hjá eftirtöldum konum: AI- dísi Kristjánsdóttur, sími 10488, Katrínu Kjartansdótt ur í 15313 og Oddfríði Jó- hannsdóttur í síma 11S09. IMWVmWWWWWWWM þriðja hundrað manns, og eru væntanlegir yfir 100 erlendir þátt takendur. Þar á meðal eru fiski- málaráðherrar allra Norðurland- anna; embættismenn, vísindamenn og fulltrúar útvegsmanna og sjó manna. íslenzku þátttakendurnir verða um 100. Auk opinberra starfs- manna verða þar í hópi vísinda- menn okkar og fulltrúar útvegs- og sjómanna. Norrænar fiskimálaráðstefnur hafa verið haldnar annað hvert ár frá lokum heimstyrjaldarinnar síðari. Hefur ráðstefnan verið haldin einu sinni áður í Reykja vík — fyrir 10 árum. Þessi ráð stefna verður haldin í Háskólan um. j Katólska kirkjan bygg- ir upp á Landakotstúni Reykjavík, 25. maí - HP ÞEGAR fullnægjandi leyfi eru fengin, hyggst kaþólski söfnuður- inn í Reykjavík reisa nýtt biskups- og prestssetur og skóla á Landa- kotstúni á svipuðum stað á lóð sinni og skólinn og prestssetrið standa nú. á. Þó munu nýju bygg- ingarnar, sem sennilega veröa fremur lágar, að öllum líkindum teygja sig lengra í áttina að Há- vallagötu en gömlu húsin, en að öðru leyti verða litlar sem engar breytingar á Landakotstúninu og ekki meira byggt á því. Á síðasta borgarráðsfundi, sem haldinn var á föstudaginn, var m. a. rætt um skipulag á Landakots- túni. Féllst borgarráð í meginatr- iðum á þá staðsetningu bygginga vestan kirkjunnar, sem framlagð- ir uppdrættir gera ráð fyrir, og fól skipulagsdeild að ganga frá skipulagi reitsins til staðfestingar. Þetta mál hefur nú verið á döf- inni töluvert lengi, en virðist nú vera að komast í höfn, og hefst kaþólski söfnuðurinn eflaust handa um byggingarnar styax og fullnægjandi leyfi eru fengin og öllum teikningum endanlega lokið. Landakotsskó’inn verður rek- inn eftir sem áður meðan á fram- kvæmdum stendur og gömlu hús- in eflaust notuð að einhverju léyti á meðan, þó að ýmislegt sé enn óráðstafað í því sambandi. En ætlunin er að rífa gömlu húsin eins fljótt og kostur er, þegar byggingu hinna nýju er lokið og þau verða tekin í notkun. NIKOSIU, 25. maí (NTB-Raut- er). — Yfirmaður SÞ-hersveitanna á Kýpur, Prem Singh Gyani her- höfðingi fór í eftirlitferð í dag til nokkurra stöðva finnskra SÞ- hermanna í úthverfum Nikosíu þap sem komið hefur til óeirða að und anförnu. Allt hefur verið með kyrrum kjörum á Kýpur í fimm daga. Háfíðarguðs- jbjónusta i Stokkseyrar- kirkju Reykjavík, 25. mai, ÁG. HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA fór fram í Stokkseyrarkirkju síðast liðin sunnudag: að viðstöddu miklu fjölmenni. Kirkjan hefur að und anförnu verið mikið endurbætt og lagfærð, en hún' er orðin göm J ul og var farin ao láta á sjá. Oll vinna liefur verið framkvæmd fyr ir frjáls framlög, og hafa endur (Framhald á 4. síðu). Á þriðja hundrðð manns sækja íiski- málaráðstefnu hér > Reykjavík, 25. maí NORRÆN fiskimálaráðstefna verður haldin í Reykjavík dag- iana 22. til 26. júní. Sitja hana á || Átti að þekkja I Svavar Gests Reykjavík 25. maí, RL ÞAÐ getur haft alvarlegar af- leiðingar að koma fram í þætt inum, „Sunnudagskvöld með Svavari Gests,“ en sú varð ein mitt raunin á fyrir hana Karin Kjölbro, frá Klakksvík í Fær- eyjum. Vegna þess að við heyrðum til liennar í fyrrgreindum þætti, þótti okkur sjálfsagt að leita hana uppi og spyrja hana meðal annars um tildrögin aö ferð hennar til landsins. Við fréttum að hún byggi á Hótel Sögu, hringdum til hennar og spurðum hvort hún nennti að svara nokkrum spurningum, Það var velkomið og hún bauð okkur til vistarveru sinn ar á hótelinu. Þegar okkur bar að, var hún íklædd hinum fagra þjóðbún- ingi færeyskra kvenna og mátti ekki á milli sjá, hvort var glæsi legra búningurinn eða Karin,, en vel fór á með þeim. — Hver voru tildrögin að komu þinni til íslands, Karin? — Nokkrum dögum áður en ég lagði af stað hingað, hringdi kunningi minn, hjá Út varpinu í Færeyjum, til mín og spurði hvort ég vildi þiggja boð Flugfélags ísiands um að koma í nokkurra daga heím- sókn til landsins. Mér þótti boð ið ævintýri líkast og var fljót að svara játandi. Samt kveið ég fyrir að fara í flugvél, hafði aldrei flogið áður. Þegar að brottfarastundu kom, var þoka yfir flugvellinum, og þá leizt mér satt að segja ekkert á blikuna. Svo renndi flugvélin sér skyndilega niður úr þok- unni og lenti á brautarendan- um af mikilli nákvæmni og mér hvarf óttinn við að sjá hve. öruggir íslenzku flugmennirnir voru. — Og hvernig fannst þér svo að fljúga? — Dásamlegt. Það var fall- egt yfir íslandi, en ég sá meðal annars Vatnajökul og Heklu. — Hvaða dag komstu? — Síðastliðið föstudagskvöld Síðan hefur verið nóg að gera við að skoða borgina. Því mið ur hefur ekki gefizt tími til að skoða fleira í þetta sinn. Móttc(kurnar hér liafa verið (Framhald á 4. sí®u).

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.