Alþýðublaðið - 25.06.1964, Blaðsíða 1
44. árg. — Fimmtudagur 25. júní 1964 — 140. tbl.
Aukin neyzla próteín-
ríkrar fæðu nauðsynleg
/ vanþróuðu ríkjunum
Reykjavík, 24. júní — HP.
NORRÆNU fiskimálaráðstefn-
unni var lialdi'ð áfram í morgrun.
Nú er skammt milli stórra listviðburða í Reykjavík. Danir, Svíar og Norðmenn fá
Krústjov, en við fáum tengúason hans og Kiev-ballettinn. Miðasala hófst í Þjóðleik-
húsinu í gær og var löng biðröð, eins og myndin sýnir.
Hófst Iiún kl. 10 f.h. en þá flut i
Carl Lindskog, forstjóri frá Sví-
þjóð, erindi um aðstoð við vanþró
uðu löndin »■ á sviði fiskveiða.
Danski fiskimálaráðherrann, A. C.
Normann, var í forsæti á ráðstefn
j unni í morgun. Fyrirhugað hafði
verið, að fulitrúarnir sigldu upp
í Hvalf jörð síðdegis í dag- og skoð
uðu hvalstöðina, en hætt var við
ferðalagið og þess í stað sýndar
kvikmyndir frá íslandi í hátiðar-
sal Háskólans.
Carl Lindskog kvaðst við annað
tækifæri hafa bent á, hve nær-
ingarefni, sem rík væru að pró-
teini, væru mikilvæg fyrir heilsu
manna, en fiskur og sjávarafurðir
eru einmitt sérstaklega auðug að
próteini. Væri enginn efi á því, að
í hafinu og hráefnum, sem úr því
fengjust, væri mikið próteínmagn,
sem enn væri ónotað. Víða í van
þróuðu löndunum rikti þó næring
arskortur, og íbúa þeirra skorti
umfram allt próteín. Benti hann
á, að einn óhugnanlegasti sjúk-
dómur, sem þar fyrirfyndist, væri
kwashiorkor, sem einkum stafaði
af próteínskorti. Yrði ekki ráðin
bót á þessu, fyrr en íbúar þessara
Frh. á 4. síðu.
Lögreglan óskar
eftir upplýsingum
Reykjavík, 24. júní. — KG.
EKIÐ var á gráa Taunusbifreið
árgerð 1963, númer R 328 á tfma-
bilinu 8-19.15 í gær. Skf mmdist
bifreiðin verulega við áreksturinn
og eru allir þeir, sem upplýsing-
ar geta gefið um áreksturinn,
beðnir að snúa sér til umferðar-
deildar rannsóknarlögreglunnar
hið fyrsta.
TOGARALANDANIR ERFIÐ-
AR VEGNA MANNEKLU
Fyrsta íslandsmót barþjóna fór fram að Ilótel Sögu í gær. Valdir dómarar, þar á
meðal fagrar konur, supu á gómsætum kokkteilum, vöfðu þeim um tunguna — og spýttu
þeim út. Sjá grein á baksíðu um úrslit keppainnar.
Á fösludagskvöld hefst á Laugardalsvelli Norðurlandamót kvenna í handknattleik.
Yfir 80 þróttmiklar stúlkur koma hingað frá Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi
ag keppa innbyrðis og við okkar stúlkur, sem æfa ‘af kappi.
Átuskilyrðin góð
fyrir Austurlandi
Reykjavík, 24. júní. —
AÐ DÓMI íslenzkra. norskra
og rússneskra fiskifræðinga er út-
lit fyrir að síldveiði verði góð
fyrir Austurlandi í sumar, en þar
er þegar verulegt síldarmagn kom
ið á miöin. Fyrir Norðurlandi eru
horfurnar ekki taldar eins góðar,
en of snemmt er þó talið að slá
nokkru föstu, því enn er skammt
liðið á veiðitímann.
Fundi íslenzkra, norskra og
rússneskra fiskifræðinga lauk á
Seyðisfirði í gærkvöldi og var
að honum loknum gefin út
skýrsla um árangur rannsókn-
anna. Fund fiskifræðinganna sátu
fyrir hönd íslendinga þeir Jakob
Jakobsson, fiskifræðingur, seni
var leiðangursstjóri á Ægi, Ingvar
Hallgrímsson, fiskifræðingur og
Svend Aage Malmberg, haffræð-
ingur.
Það kemur fram í skýrslu vís-
indamannanna, að. sjávarhitinn á
þeim slóðum, sem leiðangurinn
kannaði, þ.e.a.s. út af Vesturlandi,
Norðurlandi og Austurlandi, er
nú einu stigi hærri en í meðalárl.
Mjög lítil áta er á grunnmið-
um fyrir Norðurlandi, en aðalátu-
magnið hins vegar á djúpmiðum
langt undan landi, Vart varð við
allmikið af fiskseiðum, aðallega
loðnu fyrir Norðurlandi, og er það
ekki talið gott, þar eð sfldin þétt-
ist síður i torfur þar sem síli
er. Fyrir Austurlandi er aðal-
átusvæðlð hins vegar miklum mun
nær landi.
Mjög lítið síldarmagn fannst nú
á vestursvæðinu eins og varð
raunin í fyrra. Norska sildin, sem
að austan kemur kom nú á mjög
Framh. á 13. síðu.
Reykjavík, 24. júní. — KG.
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Togaraafgreiðslunni er það nú
nokkurt vandamál að fá fólk til
þess að starfa við losun togaranna.
Til dæmis þurftl aö losa tvo tog-
ara samtímis fyrir skömmu og var
þá ekki hægt að fá fleira fólk en
svo, að rétt hefði nægt fyrir ann-
að skipið.
Annars hefur afli verið tregur
undahfarna daga. Egill Skalla-
grímsson kom nýlega með um 160
tonn, Hallveig Fróðadóttir fer á
veiðar á morgun en hún kom
með 130 tonn.
í síðustu viku glæddist aflinn
nokkuð við Grænland og þá kom
meðal annars Sigurður með 320
tonn.
Sölukvótinn í Bretlandi fyrir
þennan mánuð mun nú vera full-
ur og verða því ekki fleiri land-
anir þar í bili.
TREG V
Reykjavík, 24. júní. — HKG.
SÍLDVEIÐI gekk fremur tregt
síðastliðinn sólarhring, enda þótt
veðnr væri allgott á miðunum. —
Síldarleitin á Raufarhöfn veitti
blaðinu þær upplýsingar í dag,
að griðarmikið hefði fundizt af
sild, en hún stæði djúpt og væri
mjög stygg.
Eftirtalin skip tilkynntu um
afla sinn í nótt til Raufarhafnar:
Snæfell'með 1100 mál, Jón Finns-
son með 1300 mál, Helga RE með
1100 mál, — og í dag tilkynntu
þessi skip um afla sinn til Rauf-
arhafnar: Gullfaxi með 750 mál,
Sigurvon með 1150 mál, Faxi með
1250 mál, Skarðsvík með 1150
mál.
Þessi skip fengu afla sinn á
sömu slóðum og undanfarna daga
þ. e. á Glettinganessflaki og líka
fyrir norðan og sunnan, norður í
Héraðsflóa og suður af Reyðar-
fjarðardýpi.
Frá Eskifirði bárust þær fregnir
í dag, að eftirtalin skip hefðu
komið þangað með afla sinn frá
því um hádegi í gær: Gísli lóðs
með 500 mál, Blíðfari með 350
mál, Akurey með 200 mál, Auð-
unn með 750 mál.
Þessi skip fá losun seinni part-
inn í nótt — en sökum brælunn-
ar, sem var á miðunum í fyrri-
nótt, losnaði nokkurt þróarpláss
á Austfjarðaliöfnum, þar sem ann
ars hefur verið löng bið.
* ~ Frh. á 14. síðu.
Valkyrjan tekur
viö ðf Draug
Aalesund, 24. júní. (NTB).
Herskipið ’ VALKYRJAN á að
taka við eftirlitsstörfum á síld-
armiðunum við ísland af Draug,
sem koma þarf heim til viögerðir
vegna strandsins á Siglufirði, seg-
ir Sunnmörposten. Lcggur VAli-
KYRJAN af stað frá Bergen til
Siglufjarðar á fimmtudsg og. á
að taka ýmsan búnað úr Draug.