BFÖ-blaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 8

BFÖ-blaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 8
Heilbrigt líf - án áfengis, 4. hluti: Lífsstíll til fyrirmyndar í síðustu þremur blöðum höfum við birt svör þrjátíu þekktra íslendinga við spurningum um bindindi og áfengisvarnir. Hér bætast við svör fjórtán karla og kvenna. í næsta blaði lýkur þess- um þætti í blaðinu og í næsta blaði þar á eftir verður tekið sam- an það helsta sem fram hefur komið. Spurt er: 1. Hver er afstaða þín til áfengis og hvað ræður henni? 2. Hvað finnstþér brýnast aðgera í áfengisvörnum? Árný Jóhannsdóttir, umsjónarmaður Töfraglugga Ríkis- sjónvarpsins: 1. Ég veit, að áfengi er skaðvald- ur. Mér þykir of vænt um sjálfa mig til þess að vera ekki ég sjálf, og ég þarf ekki á því að halda að neinu leyti. Áfengi er aldrei lausn. 2. Fólk ætti að fá að sjá og heyra meira um hvers konar skaðvaldur áfengi er, bæði manneskjunni sjálfri og líkamanum, sem og umhverfinu. Mikilvægt er að meiri upplýsingar séu til fyrir unglingana, því þeir eru næsta kynslóð sem á að taka við af okkur. Áfengi leysir ekki nein þjóðfélagsleg vandamál. Brýnt er að hafa uppi áróður fyrir ungling- ana, þar sem þeir eru svo áhrifa- gjarnir og sýna þeim fram á, hversu mikið böl áfengið sé. Ég hefi aldrei heyrt talað um áfeng- isblessun. Benedikt Sveinsson, læknir: 1. Afstaða mín til áfengis byggist á þeirri trú, að það sé hollast hverjum einstaklingi að temja sér jákvætt hugarfar, forðast að bæla tilfinningar, vera opinn og veita öðrum gleði. Sá, sem ræktar þessa eiginleika, þarf hvorki áfengi né aðra vímugjafa til að líða vel og finna hamingjuna. 2. Aðalaupphraustaogjákvæða æsku. Að foreldrar og aðrir uppal- endur gefi sér góðan tíma til að ræða við börn og unglinga þessa lands og sýni þeim traust og umburðarlyndi, en umfram allt gott fordæmi. Eðvarð Ingólfsson, rithöfundur: 1. Ég hef aldrei haft áhuga á að ganga í félag með þeim sem trúa á að Bakkus færi þeim meiri ham- ingju, betri skemmtun og gleggri dómgreind en áður. Það er and- stætt lífsskoðunum mínum. Ég lít svo á að lífið sé Guðsgjöf og okkur beri skylda til að fara vel með það. Besta leiðin í því sambandi er að forðast allt það sem brýtur sálar- heill niður en einbeita sér þeim mun meira að því sem byggir hana upp. Ég hef ekki ennþá hitt

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.