Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

BFÖ-blašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



BFÖ-blašiš

						með djúpum skilningi og þeim

kærleika, sem kristinn maður á

að hafa til náunga síns, sem er

samferða okkur á lífsgöngunni,

en á við erfiðleika að stríða og

óhamingju.

Jón Steinar Gunnlaugsson,

lögfræðingur:

1.   Ég neyti ekki áfengis sjálfur og

hef ekki gert í nærfellt ellefu ár.

Mér hefur lærst að líðan mín bæði

andleg og líkamleg er miklum

mun betri ef ég neyti þess ekki. Ég

nýt allra krafta minna og hæfi-

leika miklu betur án áfengis. Val

mitt er því auðvelt. Ég hafna

áfenginu.

2.   Ég er algerlega andvígur

hvers kyns boðum og bönnum

varðandi neyslu áfengis. Hver

maður verður að vera ábyrgur

sjálfur fyrir sinni neyslu. Ég tel

hina einu raunverulegu vörn

gegn áfengi felast í fræðslu, þann-

ig að menn eigi auðveldara með

að greina sín eigin vandamál og

forðast þau. Fræðslan gegnir líka

hlutverki við að eyða fordómum

gagnvart fólki sem á við áfeng-

isvandamál að stríða. í þessum

efnum hafa félagasamtök eins og

SÁÁ lyft grettistaki á íslandi. Ég

vona að slík starfsemi muni dafna

10

hér áfram og þá helst án þess að

verða tekin yfir af ríkisvaldinu.

Jón Freyr Þórarinsson,

skólastjóri:

1.   Það hefur alla tíð verið afstaða

mín að hafna áfengum drykkjum.

Á unglingsárum velti ég þessu

ekki mikið fyrir mér, svo fráleitt

þótti mér að fara að drekka áfengi

og eiga á hættu að missa ráð og

rænu. Það viðhorf mitt hefur ekki

breyst.

2.   Fræðsla þarf stöðugt að vera í

gangi en hún ein og sér nægir

ekki á þann hátt sem hún hefur

farið fram.

Það þarf að breyta viðhorfi fólks

til áfengis en það er hægara sagt

en gert. Margir virðast ekki gera

sér grein fyrir að sleppa megi

áfengi við hin ýmsu tækifæri og

að þeir eru margir sem vildu vera

lausir við áfengið en kunna bara

ekki við að láta það í ljós.

Fullorðnir þurfa að gera sér

grein fyrir því að þeir eru fyrir-

mynd barna og unglinga.

Foreldrar ættu að fækka þeim

tækifærum sem áfengi er haft um

hönd á heimilum.

í öllum veislum sem áfengi er í

boði á að vera nægilegt framboð af

*4Bt" ' "fr	*•

	Ski  1

W^^M r%t   Í              *?	vMbi

iV'	

óáfengum drykkjum og framborið

í jafhfínum glösum og áfengið.

Óþolandi er að þurfa sífellt að

sérpanta óáfenga drykki og þurfa

svo að bíða í lengri tíma eftir

afgreiðslu.

Efla þarf framboð af skemmt-

unum þar sem áfengi er ekki haft

um hönd. Ýmis félög gætu haft

forgöngu um slíkt.

Jónas Jónasson,

útvarpsmaður:

1.   Það var öllum ljóst, sem

þekktu til mín, að ég var kominn

á háskabraut í lífi mínu. Ég var

einn af fjörutíu fyrstu Fríport-

urunum, og síðan eru 14 ár liðin.

Við erum hættir að drekka. Erum

ekki með yfirlýsingu um það eða

játum einhvern eið um það, að við

ætlum aldrei að drekka framar.

Ég hefi ekki drukkið í dag í 14 ár.

2.   Við ákváðumm að svipta hul-

unni af þessu öllu saman og

ákváðum að flytja öðrum þennan

boðskap vítt og breitt um landið,

og upplýsa fólk um eðli þessa

sjúkdóms. Fræðsla er það sem

gildir, og það verður að byrja

strax í skólum á fyrirbyggjandi

fræðslu, og þá ekki í formi boða og

banna.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16