Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

BFÖ-blašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



BFÖ-blašiš

						Konur eru varkárari í umferðinni

- segir Ólafur Ólafsson landlæknir

Umferðarmál eru sígilt umræðuefni ekki

síst hjá félagi eins og Bindindisfélagi öku-

manna. Þau snerta okkur öll á einhvern hátt.

Við erum þátttakendur í umferðinni sem bíl-

stjórar, gangandi vegfarendur, farþegar í

einkabílum eða almenningsvögnum eða hjól-

reiðamenn. Við njótum hennar á ýmsan hátt,

ferðumst þægilega milli staða í bílum og not-

um þá til flutninga. Við höfum líka af henni

ýmsan ama, hávaða, mengun og að ekki sé tal-

að um umferðarslys. Flest kunnum við nauð-

synlegar umferðarreglur en það gengur

kannski misjafnlega að hafa þær í heiðri,

hvort heldur er að ganga yfir gatnamót á

rauðu ljósi þegar engin umferð er eða aka á

góðum degi svolítið hraðar en hraðamörkin

leyfa.

Ólafur Ólafsson landlæknir er einn þeirra

er hafa látið umferðarmál til sín taka og þá

aðallega slysavarnir. Hann féllst á að spjalla

við BFÖ-blaðið um hitt og þetta sem tengist

umferðarmálum. Ólafur er fyrst spurður

hvernig honum finnist umferðarmenning ís-

lendinga vera:

Hvorki góð né slæm

- Hún er í sjálfu sér kannski hvorki góð né

slæm - umferðarmenning er eins og ónnur

menning, hefur kosti og galla og þar eru

margir spámenn. Þegar við ræðum umferðar-

menningu og umferðarslys rekumst við alltaf

á það að við höfum uppi margar spurningar en

svörin eru færri. Hvers vegna aka menn ekki

á börn í eigin heimagötu en frekar í öðrum

hverfum? Hvers vegna víkur enginn í umferð-

inni á íslandi en allir í útlöndum? Hvers

vegna er stór hluti hjólandi barna er slasast í

umferðinni undir 7 ára aldri? Agaleysi og til-

litsleysi — eru þetta eðlislægir eiginleikar eða

áunnir? Ég held að hegðun manna mótist

verulega af uppeldi - þú ekur eins og þú ert.

En við rekumst sem sagt alltaf á petta að

svörin vantar og okkur vantar mun meiri

rannsóknir í þessum efnum því að ákvarðanir

16   eru oft teknar að óathuguðu máli. Ýmislegt

hefur þó verið gert á þessu sviði og við íslend-

ingar getum oft nýtt eigin reynslu og það sem

nágrannaþjóðirnar hafa gert.

Þú talar um kosti og galla - hverjir eru helstu

gallarnir?

-  Það eru ýmis atriði sem huga þarf að í

umferðinni. Við þurfum að skoða það sem ég

kalla áhættulíferni manna í umferðinni.

Hverjir eru það sem valda umferðarslysum?

Er það einhver sérstök manngerð? Er það við

sérstakar aðstæður - ölvun eða annað - hvað

liggur að baki þessum fjölda umferðarslysa?

Hegðum við okkur öðruvísi þegar við setjumst

undir stýri og höldum út í umferðina heldur

en við myndum gera annars staðar? Já, að

nokkru leyti er það svo.

Við gætum líka spurt hvers konar fræðslu

og kennslutækni þurfi að beita til að vekja

áhuga barna og unglinga svo að þau temji sér

hættuminna hátterni í umferðinni. Hér koma

skipulagsmál líka við sögu. Slys á börnum eru

til dæmis mun færri í borgum þar sem skipu-

lag er gott en í gömlum borgum. Það hefur

komið í ljós í rannsóknum að skipulag borga

ræður miklu um tíðni slysa í umferð. Gatna-

kerfi þarf í aðalatriðum að skipuleggjaþannig

að umferðarþungar götur liggi til dæmis ekki

gegnum fjölmenn íbúðarhverfi og það þarf að

leggja verulegt fjármagn í mannvirki fyrir

gangandi vegfarendur - það má ekki alltaf

bara hugsa um bílana.

Yngra fólk í Umferðarráð

Ólafur lagði fyrir nokkru fram tillögur um

breytingar á skipan Umferðarráðs og við báð-

um hann að greina frá þeim:

-  Þær hlutu nú ekki náð fyrir augum

alþingismanna en ég setti þær fram að vel

athuguðu máli. Ég hef nokkuð ákveðnar hug-

myndir um hvernig það getur helst komið

málum til leiðar.

Það þarf að fá yngra fólk en nú er í ráðið. Þar

situr nú of stórt hlutfall hagsmunaaðila og

þess vegna þarf að breyta skipan þess. Það

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32