Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

BFÖ-blašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



BFÖ-blašiš

						Leitað svara

veg með bundnu slitlagi og 80 km merki þegar

því lýkur. Þar er nú steinkastmerki og mætti

því nota sömu stöngina.

Leitað var svara hjá Óla H. Þórðarsyni,

framkvæmdastjóra Umferðarráðs.

Ég er sammála því að samræmi þarf að vera

í umferðarmerkingum, m.a. þegar komið er út

úr þéttbýli og við tekur aukinn hámarks-

hraði.

í reglugerð um umferðarmerki og notkun

þeirra (útg. 5/7 89) eru ný leiðbeiningarmerki

í flokki upplýsingamerkja sem heita þéttbýli

og þéttbýli lokið. Merkjum þessum á að koma

fyrir annars vegar við akstursleiðir inn á

svæði þar sem ákvæði umferðarlaga um þétt-

býli gilda, en hins vegar þar sem þéttbýlis-

reglur gilda ekki lengur. Umferðarráð og

dómsmálaráðuneytið hafa hvatt til þess að

slíkum merkjum verði komið fyrir á þéttbýlis-

mörkum og má búast við að svo verði gert á

næstunni.

Umferðarmerki sem tilgreina hámarks-

hraða - miðað við bestu aðstæður - eru sem

slík áminnig til ökumanna um að fara ekki

hraðar en áletrun þeirra segir til um. Ég hef

því verið þeirrar skoðunar að við hættulega

staði á vegum landsins ætti að „taka niður

hraða" með merkjum - jafnframt því að hafa

þar viðvörunarmerki er greini nánar frá hætt-

unni. En um þetta atriði eru ekki allir sam-

mála.

Þingvallahringurinn

Á hverju ári leggja margir leið sína frá

Reykjavík til Þingvalla og fagna því að sú leið

er nú öll lögð bundnu slitlagi. Þegar haldið er

aftur til höfuðborgarinnar freistast sumir til

að fara „hina leiðina" til baka, gegnum Sog og

Ölfus um Hellisheiði. En þá tekur verra við.

Vegurinn frá Þingvöllum suður í Þrastaskóg

hefur lítið verið bættur síðustu áratugi, þetta

er harður malarvegur og á honum eru þröngar

brýr. Þessi vegarkafli hlýtur að vera nægilega

fjölfarinn til að réttlætanlegt sé að klæða

hann bundnu slitlagi. Nú eru ekki nema tíu ár

til næstu stórhátíðar á Þingvöllum, þegar

Kristnitökunnar verður minnst. Er ekki

tímabært að gera úrbætur á þessum vegi fyrir

aldamót til að greiða fyrir þeirri umferð sem

þá má búast við?

Leitað var svara hjá Helga Hallgrímssyni

aðstoðarvegamálastjóra:

Umræddur kafli á Þingvallavegi er um 24

km að lengd, malarvegur með nokkrum mjó-

um brúm og ræsum. Kostnaður við að endur-

byggja veginn og leggja hann bundnu slitlagi

er metinn á tæplega 200 milljónir króna.

Ekki liggur fyrir áætlun um það, hvenær

ráðist verði í að byggja kaflann. Verkefnið er

þó ekki stærra en svo, að auðveldlega má ljúka

því fyrir aldamót, jafnvel þó að ekki verði byrjað

á næsta ári eða þarnæsta, en það eru þau ár,

sem núgildandi vegáætlun nær yfir.

Þessi kafli keppir við marga aðra um það

takmarkaða fjármagn, sem til umráða er

hverju sinni. Hingað til hefur hann lotið í

lægra haldi, enda umferð þarna ekki mjög

mikil. Um kaflann milli Þrastaskógar og

Ljósafoss fara tæplega 300 bílar á dag árið um

kring. Ofan við Ljósafoss er umferðin veru-

lega minni en þetta. Miðað við umferð á mörg-

um malarköflum á Suðurlandi, er umferð um

þennan veg lítil. Er þar m.a. að finna ástæðu

þess að hann hefur ekki komist að.

Á þessu stigi er ekki völ á ítarlegri svörum,

en hér eru gefin. Vel má þó taka undir þá ósk

fyrirspyrjanda, að bundið slitlag verði komið

á þennan veg fyrir aldamót.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32