BFÖ-blaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 8

BFÖ-blaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 8
Eftir einn ei aki neinn: Víðtækur stuðningur við lækkun áfengismarkanna Á síðustu árum hafa 2.300-2.600 ökumenn verið teknir árlega vegna ölvunaraksturs. Þar af voru um 10% með minna vínandamagn í blóði en 0,5%c. Hlutdeild ölvaðra manna í dauðaslysum í umferðinni er talin vera um 25% og öðrum alvarlegum umferðarslysum um 18%. Báðar þessar tölur hafa farið hækk- andi á undanförnum árum. Lækkun prómillmarka Fyrir skömmu lagði Árni Gunnarsson ásamt fleiri þingmönnum fram frumvarp í Neðri deild Alþingis þess efnis að lækka gild- andi mörk um vínandamagn í blóði öku- manna úr 0,5 prómillum í 0,25 prómill. BFÖ-blaðið birtir hér fyrri hluta greinar- gerðar með frumvarpinu og álit nokkurra ein- staklinga, sem sinna sérstaklega umferðar- öryggismálum eða tengjast þeim, á efni frum- varpsins. Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum. Flm.: Árni Gunnarsson, Ragnhildur Helga- dóttir, Geir Gunnarsson, Kristín Einarsdótt- ir, Jón Kristjánsson. 1. gr. 2. mgr. 45 gr. laganna orðist svo: Ef vínanda- magn í blóði ökumanns nemur 0,25%c eða meira telst hann ekki geta stjórnað ökutæki örugglega. 2. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1991. Úr greinargerð „ . . . Tilgangurinn með flutningi þessa frumvarps er að eyða þeirri óvissu sem ríkt hefur um áfengisneyslu og akstur bifreiða. Verði þessi breyting að lögum þarf enginn að 8 velkjast í vafa um að ekki má aka bifreið eftir að hafa drukkið áfengi, hversu lítil sem neysl- an hefur verið. Ekki þarf að fara mörgum orðum um nauð- syn þessarar breytingar. Umferðarslysum af völdum ölvunaraksturs hefur farið fjölgandi. Núgildandi umferðarlög valda því að öku- maður verður hverju sinni að meta sjálfur, eft- ir að hafa neytt áfengis, hvort hann er hæfur til að aka bifreið eða ekki. Þetta mat varð mun erfiðara eftir að bruggun áfengs öls var leyfð hér á landi. Með þessari breytingu verður eftirlit með framkvæmd laganna mun auð- veldara en áður. Sú lækkun á vínandamagni í blóði, sem hér er lögð til, kemur ekki í veg fyrir að almenn- ingur geti notað lyf með vínanda í eða drukkið léttan pilsner. Ölvunarakstur er nú orðinn þvílíkt vanda- mál í mörgum löndum, ekki síður en á íslandi, að víða hefur leyfllegt vínandamagn í blóði verið lækkað og tekin upp ný viðmiðun 0,0%c. Með þessu frumvarpi er á afdráttarlausan hátt staðfest að neysla áfengis og akstur fer ekki saman.“

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.