Skólablaðið - 01.03.1911, Blaðsíða 10
SKÓLABLAÐIÐ
58
— í einum spretti heim aftur, og settist rólegur, en lafmóður, í
sætið sitt. Þetta kom oftar fyrir, — og dugði.
Óróaseggurinn var Iæknaður.
Smágreinar um uppeldi.
(Eftir Guðmund Hjaltason).
Sitt hæfir hverju barnl.
VIII.
Kærleikur, réttlæti og sannleikur á að vísu við öll börn. En
það skiftir hvernig beita skal dygðum þessum við börnin, eða í
hvaða mynd þær eiga að birtast þeim. Má vel segja um mynd-
ir þær, að »sitt hæfir hverju barni«. í »uppeldis tímaritinu«
var, meðal annars góðs, ágæt litgerð um 4 »temperament-,
eða skaplyndi barna. Hana ættu allir kennarar að kynna sér.
1.
Löt börn.
Oft er kvartað um leti barna bæði í skólum ogáheimilum,
Letin er jafnan leið. En best er að gá að af hverju hún kem-
ur áður en hart er tekið á henni. Hún kemur oft af ofreynslu
andlegri eða líkamlegri. Börn eru oft látin vinna of lengi, eða
læra of lengi, Fá svo ekki nógan tíma til að hvíla sig og leika
sér. En hæfileg hvíld og hóflegur leikur er alveg nauðsynlegt
fyrir börn.
Það er nú eiginlega verkefni heilsufræðinganna að ákveða
hvað mikinn tíma börn þurfi til hvíldar og leika o. s. frv.
En til reynslu set eg hér samt töflu um þetta. Er hún
tekin úr A. O. Drachmanns og Axel Hertels Sundhedslœre 1886.
Segjast þeir hafa hana eftir sænskri skólanefnd, og segja hana í
öllu verulega samkvæma orðum frægra lækna og líffræðinga, og
yfirlýsingum, sem ýmsar nefndir á Þýskalandi, Englandi, Frakk-
landi og í Bandaríkjunum hafa gefið um tímanotkun barna og
unglinga. s. 366.
Vera má, að sumt sé orðið úrelt f töflu þéssari. Ef svo er,