Skólablaðið - 01.08.1912, Blaðsíða 1

Skólablaðið - 01.08.1912, Blaðsíða 1
SKOLABLAÐIÐ SJÖTTI ÁRGANGUR 1912. Reykjavík, 1. ágúst. 8. tbl. Lýðháökóli. Hvað er lýðháskóli? Mörgum, sem nefnir þettá orð, mundi verða stirt um að svara spurningunni. Og sjálfsagt má svara henni á fleiri en einn veg. En úr því að farið er að ræða og rita nokkuð um stofn- un lýðháskóla hér á landi, vírðist rétt að skýra fyrir sér, hvað meint er með orðinu lýðháskóli, — ef rétt er til getið, að hug- myndir manna um slíkan skóla séu hér enn nokkuð þoku- kendar. í orðinu liggur fyrst og fremst það, að þessir skólar séu handa lýðnum, — fólkinu — en ekki embættismannaefnum. Þannig eru barnaskólar og unglingaskólar hka lýðskólar. En lýð-háskóli bendlr til þess, að hér sé um eitthvað meira og hefðarlegra að ræða en rétta óg slétta únglingaskóla; hvorki meira rié minna en háskóla fyrír fólkið. Annars er ekki vert að velta svo mjög vöngum yfir náfn- inn\ það er blátt áfram útlegging af danská orðínu »Folkehöj- skole«; nafnið og skólinn er frá Danmörku runnið. Það var klerkurinn og skáldið alkunna Nikolaj Frederik Severín QrundWig, sem átti fyrstu hugmyndina um lýðháskóla, og sem stofnaði hinn fyrsta lýðháskóla í Danmörku (1844). Hann kallaði þeirra tíma »lærðuskóla« skóla »fyrir dauðann* með þeirra lestrargörpum og prófum. Og vildi láta stofna »skóla fyr- ir lífið«, háskóla með því aðal markniiði að vekja til hugsunar og leiða til þekkingar á rnóðurrtiáli, þjóð o landi.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.