Alþýðublaðið - 02.06.1965, Blaðsíða 3
ooooo
Ráðstefna um störf
Norðurlandaráðs
Þessa niynd a£ nýja gosinu tók Sigurjón Einars son, er hann flaug yfir það í gær.
Sprengigos á tveggja til
þriggja mínutna fresti
Reykjavík. — GO.
MiLLI klukkan 9 og 10 í
morgun sáu Vestmannaeying-
ar, að mikið var um að vera
á nýju gosstöðvunum austur
af Surtsey. Voru þar mikil
sprengigos á tveggja til
þriggja mínútna fresti og stóð
sand eöa vikurstrókur um 200
— 300 metra í loft upp í
hryðjunum. Skyggni var þá
sæmilegt, en hefur verið
slæmt eða ekkert undanfarna
daga.
Sigurjón Einarsson flug-
maður hjá Flugmálastjórninni
flaug út að gosstöðvunum um
hádegið í dag, en þá var gosið
að mestu hjaðnað niður og
hafði sig ekki í frammi. Segir
hann að þarna sé um að ræða
tvo gígi, Annar gígurinn er
sá sem byrjaði að krauma í
nú á dögunum, en hinn er ný-
tilkominn og um 300 metrum
austar. Hann er ekki nærri
eins athafnamikill.
• Sigurjón segir, að eftir lýs-
ingu sjónarvotta í Vestmanna-
eyjum hafi goshryðjan í morg-
un minnt allmikið á byrjun-
ina á Surtsgosinu. Fylgdi
henni mikill og hár gufu-
strókur.
Fréttamaður blaðsins í
Vestmannaeyjum fór suður á
eyjuna skömmu eftir hádeg-
ið. Var þá ekkert að sjá og
skyggni fór óðum versnandi.
Síðdegis í dag var komin þoka
— og hún niðadimm — í Vest-
mannaeyjum.
NORBURLANDARÁÐ efnir tU
ráðstefnu í Hasselby nálægt Stokk
hólmi dagana 2.-4. júnf til að
kynna starfsmönnum ýmissa al-
þjóðlegra samtaka starfsemi Norð
nrlandaráðs. Ráðstefnuna sækja
26 fulltrúar 16 alþjóðlegra stofn-
ana. Meðal annars mæta fulltrúar
frá Evrópuráðinu, Fríverzlunar-
bandalaginu, Efnahagsbandalagi
sexveldanna og ýmsum stofnunum
Saineinuðu þjóðanna.
Helztu málin, sem rædd verða,
eru þessi: Starfsreglur Norður-
landaráðs og samanburður á þeim
og starfsreglum alþjóðastofnana,
Norðurlönd og samstarf Evrópu-
ríkja, norrænt samstarf á sviði
menningarmála, efnahagsmála, lög
gjafar og félagsmála. Gert er ráð
fyrir framsögu og umræðum um
hvert mál. Framsögumenn verða
m. a. Per Hækkerup utanríkis-
ráðherra og Hans Sölvhöj menn-
ingarmálaráðherra Danmerkur,
Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamála-
ráðherra, Himle samgöngumálaráð
herra Noregs, Knut Getz Wold
bankastjóri Noregsbanka, Max Jak-
obsen sendiherra og H. Waris
prófessor, Finnlandi, Hermann
Kling dómsmálaráðherra Svía,
prófessor Bertil Ohlin, einn af
varaforsetum ráðsins, Bertil Ols-
sen aðalritstjóri, Svíþjóð, Sven
Moberg deildarstjóri, Svíþjóð.
Ráðstefnan verður sett af for-
seta Norðurlandaráðs, Sigurði
Bjarnasyni.
Herm&nn
sendir heim
Washington. 1. júní. (ntb-afp).
Lyndon B. Johnson forseti lýsti
því yfir á blaðamannafundi í dag,
að hann hefði gefið skipun um að
20 þús. bandarískir landgöngulið-
ar, sem nú eru í Dóminíkanska
lýðveldinu skuli sendir heim. Hann
sagði að ástandið þar væri samt
enn mjög alvarlegt, og Bandaríkja
menn fögnuðu öllum tilraunum til
að finna friðsamlega lausn á deil
unum þar.
Johnson forseti skýrði einnig
frá því á þessum fundi, að hann
muni ávarpa 20. allsherjarþing S
Þ, sem kemur saman í San Frans-
isco síðar í þessum mánuði.
ÍSBJÖRN Á
UPPBOÐI
HLÍF SAMÞYKKIR HEIM-
ILD TIL VINNUSTÖÐVUNAR
.SIGURDUR BENEDIKTSSON
heldur síðasta listmunauppboð
vetrarins í Hótel Sögu í dag, og
hefst það kl. 17. Að þessu sinni
vreða boðin upp 51 verk og eru
þar af 20 myndir og ýmsir munir
Úr dánabúj Gunnars H- Róberts
sonar, leikstjóra. Þeirra á meöal
eru nokkrar myndir eftir Gunnar
og þrjár abstraktsjónir úr brennd
um Ieir eftir Gerffj Helgadóttur-
Á uppboðinu eru máfverk eftir
marg-a þekk'a málara, þeirra á
meðal Kjarval, Mugg, Þorvald
Skúlason, Gunnlaug Sclieving,
Gunnlaug Blöndal og fleiri. Að
lokum má geta Þess aff boðin
verður upp stór og glæsiíegur ís-
bjarnarfeldur.
VERKAMANNAFÉLAGIÐ Hlíf
í Hafnarfirði hélt fund síðastliðið
mánudagskvöld. Var á fundinum
samþykkt að veita trúnaðarmanna-
ráði félagsins hehnild til aff boða
vinnustöðvun, er það teldi heppi-
legt og ennfremur ályktun um aff
banna verkamannavinnu við höfn-
ina í Hafnarfirði á sunnudögum.
TIL MOSKVU
Moskva, 1. júní. (ntb-tass).
I Tage Erlander forsætisráðherra
' Svía fer í opinbera heimsókn til
Sovétríkjanna 10.-14. júní, að því
er tilkynnt var í Moskva í dag.
j í opinberri tilkynningu um
þetta var aðeins sagt hvenær heim
; sóknin yrði, og að forsætisráð-
I herrann hefði fært fram þakkir
I fyrir boð sovézkra yfirvalda.
Ályktanir Hlífarfundarins fara
hér á eftir:
„Fundur haldinn í Vmf. Hlif,
mánudaginn 31. maí 1965, heim-
ilar trúnaðarmannaráði félagsins
að lýsa yfir og framkvæma vinnu
stöðvun hjá atvinnurekendum á
þeim tíma, sem það er talið
heppilegt að dómi trúnaðarmanna-
ráðs.”
Þá var rætt um sunnudagavinnu
og í því sambandi samþykkt ein-
róma eftirfarandi:
„Fundur haldinn í Vfm. Hlíf,
31. maí 1965, samþykkir að þar til
öðru vísi verði ákveðið af hálfu
Vmf. Hlífar, skuli öll vinna verka-
manna bönnuð á sunnudögum, við
höfnina í Hafnarfirði, þ. e. við
! ferming og afferming skipa.”
i Einnig var rætt um ásigkomu-
| lag verkamannaskýlisins við höfn-
ina og gerð þar ályktun um lag-
I færingar.
Vélarnar eru sjálfvirkar og hreinsa a 50 minutum.
NÝ AÐFERÐ VIÐ
FATAHREINSUN
Reykjavík. — EG.
NÝSTÁRLEGT fatahreinsunarfyr-
irtækí hefur starfsemi sína í dag.
Fyrirtækið heitir Fljóthreinsun
h.f. og er til húsa aff Gnoðarvogi
44, skammt frá Hálogalandi.
Fréttamönnum var í gær boðið
að skoða húsakynni og vélakost
Fljóthreinsunar h.f., en hér er um
algjöra nýjung í fatahreinsun að
ræða. Hið nýja fyrirtæki hefur
sex þurrhreinsunarvélar af gerð-
inni Norge. Vélarnar eru I útliti
svipaðar nýtízku þvottavélum, en
ekkert vatn er þó notað við hreins
unina, aðeins er úðað vatni á
óhreina staði áður föt eða tau er
sett í vélarnar.
Hreinsuntn sjálf tekur aðeins
50 mínútur og geta viðskiptavinir
hvort sem þeir vilja beðið meðan
fötin eru hreinsuð eða sótt þaú
samdægurs. Þarna kostar 114 krón
ur að þurrhreinsa fjögur kíló af
af taui eða fötum og er það tals
Framhald á 14. síðu.
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 2. júní 1965 ;3