Alþýðublaðið - 02.06.1965, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 02.06.1965, Blaðsíða 4
Ritstjórai: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfull- trúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900 - 14903 — AugLýsingasími: 1490G. ASsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötti, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu- blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — X .lausasölu kr. 5:00 eintakið. Utgefandi: Alþýðuflokkurinn. TVÆR HUGMYNDIR VIÐRÆÐUR verkalýðshreyfingarinnar við at- vinnurekendur um nýja kjarasamninga eru komnar á lokastig. Fylgist þjóðin með því af athygli, hvaða horfur eru taldar á samkomulagi, enda getur engum dulizt að málalok munu ráða miklu um örlög þjóð- arinnar næstu misseri. Bæði forsætisráðherra og for- seti Alþýðusambandsins hafa minnt á, að venjulega náist ekki árangur í slíkum viðræðum fyrr en á síð- ustu stundu, og ber það vonandi vott um, að enn ríki bjartsýni um samkomulag. Ekki er ráðlegt að halda uppi miklum opinberum I umræðum um einstök atriði, sem f jallað er um á lok- uðum samningafundum. Þó vill Alþýðublaðið minna 'i á tvær hugmyndir, sem fram hafa komið áður, en hugsanlega gætu greitt fyrir samkomulagi. Fyrri hugmyndin er að tryggja kjarabætur í á- föngum, svipað því kerfi, sem hefur komið verkakon um svo vel á undanförnnm árum. Yrði þá að semja ; til tveggja ára og gera ráð fyrir reglulegum breyting : um. Verkalýðurinn þyrfti að vísu að hafa einhverja varnagla í samningi til svo langs tíma, en atvinnurek endur mundu fá svigrúm til umþóttunar, er þeir vissu að hverju þeir ganga. Verkakonur hafa á undanförnum árum fengið meiri raunverulegar kjarabætur en verkamenn, og r, má þakka það lögunum um launajafnrétti, þar sem * reynd var tröppuhækkun á kaupi þeirra, unz vissu . marki er náð. Að vísu er erfiðara að beita þessari að * ferð við allar stéttir í einu, en þó gerlegt, ef allt talið , um tækni og hagræðingu er rneira en innantóm orð. . Hin hugmyndin snertir ekki beinlínis kjör verka- fólks, en gæti þó komið að gagni. Hún er sú, að sett verði upp áætlunarráð, þar sem fulltrúar verkalýðs, atvinnuvega, sveitarfélaga og ríkis kæmu saman til að fjalla um heildarlínur í efnahagskerfinu, sérstak- lega skipulag framkvæmda, sem hafa mikil áhrif á eftirspurn eftir vinnu og fleiri atriði vinnumarkaðs- ins. Verkalýðsfélögin hafa sakað ríkisstjórnina um að hafa ekki haldið verðbólgu í skefjum eins og um var samið í júní í fyrra. Slíkt ráð gæti hjálpað mjög -: til þess að nýtt samkomulag yrði lialdið svo að hvor- ugur geti um kvartað. Undanfarin ár hefur verið stigið hvert sporið á j fætur öðru í átt til áætlunargerðar um framkvæmd- ir. Eru allir flokkar sammála um þá stefnu í aðalatrið um, og virðist tímabært að setja á stofn víðtæka sam istarfsnefnd um þau mál, er gefi bæði verkalýðssam- >, tökum og atvinnuvegum tækifæri til að koma skoð II unura sínum á framfæri og fylgjast með framkvæmd mála. Slíka''‘ stofnanir eru til í flestum nágrannalönd ' um okkar, jafnvel fyrir einstaka landshluta. Mætti leggja eitthvað af nefndum niður um leið og nota Efnahagsstofnunina til stuðnings, svo að ekki rísi nýtt skrifstofubákn með skipan áætlunarráðs. 4 2. júní 1965 - ALÞÝÐUBLADIÐ Fegurðarsamkeppnin 1965 LOKAÚRSLIT 06 KRÝNINGARHÁTÍÐ fer fram á HÓTEL SÖGU — SÚLNASA LNUM finimtudag 3. og föstudag 4. júní. FIMMTUDAG: Kjörnar veröa: UNGFRÚ ISLAND 1965 Og UNGFRÚ REYKJAVÍK 1965 MEÐAL SKEM MTIATRIÐA: Hljómsveit Ásgeirs Guðmundssonar (Dumbo sextett frá Akranesi), söngvari Sigursteinn Há- konarson. — Tízkusýning, nýjasta kvenfatatízk an frá kjólaverzluninni EIsu og dömubúðinni Laufið. — Hattar frá Hattaverzlun Soffíu Pál ma. Stúikur úr Tízkuskólanum h.f. sýna. Stjórn- andi Sigríður Gunnarsdóttir. — Danssýning C amilia Hallgrímsson. — Gamanvísur og eftir- hermur Jón Gunnlaugsson. — Dans til kl. 1 eftir miðnætti. FÖSTU DAGUR: KRÝNINGARHÁTÍÐ OG TÍZKUSÝNING Einnig verða hin sömu skemmtiatriði og fyrra kvöldið. Rósa Einarsdóttir krýnir ungfrú ísland 1965 og ungfrú Reykjavík 1965. Hljómsveit Ásgeirs Guðmundssonar (Dumbo sextett frá Akranesi) skemmtir til kl. 3 eftir miðnætti. Aðgöngumiða að báðum kvöldunum má panta í síma 20743 og Súlnasal og borðpantanir verða í Súlnasal Hótel Sögu miðvikudag, fimmtudag og föstudag millí kl. 2 og 6 e. h. á horninu MER ÞÆTTI GAMAN AÐ vita hvort mig misminni. Ég man sem sagt ekki eftir því, að ég hafi séð eins öran grasvöxt og svo snögg legan eins og nú svo snemma sum ars sem raun er á. — Það er kom ið kafgras í garöana hér í grennd inni og ég veit mörg dæmi þess, að menn eru farnrr að slá. Vorið hefur líka verið mjög miít, hit ar og regnskúrir á milli,— það er eins og ég hafi séð grasið vaxa. GOTT VÆRI ef við fengjum gott sumar, því að við eigum það sannarlega skilið- Síðasta sum ar var ekki skemmtilegt, og varla -heldur sumarið þar áður, sífelld ar rigningar og kuldastríð. Við skulum að minnsta kosti vona það bezta- Enn eru menn ekki farnir að taka sumarleyfi sín, en þau munu byrja um þessi mánaða mót. ORÐSENDING til ,,Lesanda úti á landi.“ bréf þitt get ég því mið ur ekki birt en ég viL taka það fram, að ég er þér hjartanlega sammála, en við þetta verður að sitja. Á. H. SKRIFAR „Mig langar að gera útvarpið að umtalsefni í þetta sinn, þú hefur rætt svo mik- ið um hægri og vinstri akstur að undanförnu og ekkert minnzt á isumardajgskrána eða vetrardags skrána, en fyrir eldra fólk eins og mig skiptir útvarpið miklu og mér finnsb að vetrardagskráin. hafi verið ágæt, sérstaklega tveir þætt ir, Kaupstaðirnir keppa, sem oft var ágætur en reyndar stundum lé legur og, Hvað er svo glatt, sem var oftast ágætur- SUMIR AF LEIKÞÁTTUNUM voru afbragð- Ég á t.d- við bítla þættina á bifreiðaverkstæði, Jón og lampinn o. fl. Jón og lampinn var ekki aðeins skemmtilegur og vel upp færður lieldur var hann ein harðasta gagnrýni á skattsvik og mannlegan veikleika, sem ég liefi heyrt. Annarsvegar var verzl Ég sá grasið gróa. ★ Gott og milt vor. ★ Um vetrardag- skrá útvarpsins og dálítið um sumardagskrána unarmaðurinn, sem aldrei gaf neitt upp en velti sér svo í pea ingum og hins vegar skattamaður inn smjaðurslegur við yfirboðara. sinn en frekur og beitti óspart valdi við verzlunarmanninn. AUK ÞESS SEM SVO voru hlægilegar náttúrulýsingar. Þena an þátt ættu forráðamenn útvarps ins að endurtaka. Mér finnst a# ég sakni þeirra Halldórs og Lilj* og ekki rétt að láta lífláta þau svona fyrir útvarpshlustendum. Ég skil að útvarpið verður að spara, en samt hefði átt að hafa, Hvað er svo glatt áfram í sumar, ég hefði glaður greitt hundrað krónum meira í afnotagjald næst. LÓÐIR HLUTAFÉLAGSINS LAND við Hagamel, Grenimel og Reynimel verða til sölu á næstunni. Lóðirnar (ca. 650 ferm.) eru ætlaðar fyrir tveggja hæða hús og ein lóð (ca. 4000 ferm.) fyrir þriggja dyra fjölbýlishús. Hluthafar h.f. Lands hafa forkaupsrétt. Þeir hl uthafar, sem vilja nota sér bennan forkaups- rétt, verða að tilkynna það skriflega til stjórn ar félagsins fyrir 1. júlí n.k. Eftir þann tíma verður lóðunum ráðstafað til annarra. Tilboð sendist stjórn félagsins í pósthólf 457.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.