Alþýðublaðið - 04.06.1965, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 04.06.1965, Blaðsíða 3
Kosningar í borgarstjórn Reykjavík. — EG. KOSH) var í ýmsar nefndir og ráð' borgarinnar á fundi borgar- sf jórnar í gærdag. Úrslit kosning- anna uröu sem hér segir: Frú Auður Auðuns var endur- kjörin forseti borgarstjórnar og varaforsetar Þórir Kr. Þórðarson og Gísli Ualldórsson. Skrifarar borgarstjórnar voru kjörnir Birgir ísl. Gunnarsson og Alfreð Gísla- son, og til vara Þór Sandholt og Adda Bára Sigfúsdóttir. í borgarráð voru kjörin: Auður Auðuns, Gísli Halldórsson, Birgir ísl. Gunnarsson, Guðmundur Vig- fússon og Kristján Benediktsson. Hlutkesti réði að Kristján hlaut kosningu í stað Óskars Hallgríms sonar. í byggingarnefnd voru kosnir: Guðm. H. Guðmundsson, Þór Sandholt og Þorvaldur Kristmunds son. Aðalmenn í heilbrigðisnefnd: Birgir ísi. Gunnarsson, Ingi Ú. Magnússon og Úlfar Þórðarson. Framliald á 10. síðu. Sýning á vefnaði og lauþrykki opnuð Reykjavík. — OÓ. í DAG verður opnuð í gagn- ' fræðaskólanum við Vonarstræti sýning á verkum nemenda Sigrún , ar Jónsdóttur. Á sýningunni eru 1 margar tegundir listiðlnaðar en j mest ber á vefnaði alls konar og tauþrykki. Allur ágóði af sýn- j ingunni rennur til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og einnig ætti hún að geta orðið fötluðu fólki hvatning til að leggja fyrir sig listiðnað. 1 í vetur hafa yfir 100 nemendur stundað nám hjá Sigrúnu, en hún heldur 6 til 8 vikna námskeið 1 ýmsum greinum listiðnaðar og hefur gert undanfarin sjö ár, og hafa margir nemendur hennar stundað þarna nám ár eftir ár. Námsgreinar eru margs konar, t. d. batik, ryavefnaður, tauþrykk, útsaumur og vefnaður af ýmsu tagi. Sérstök áherzla er lögð á að kenna mynzturteikningar og * Frh. á 10. síðu. RÆKTA ÞJÓÐERNI SITT AF ALÚÐ HELGI SÆMUNDSSON, for- maður Menntamálaráðs, er ný- kominn til landsins, en hann hefur að undanförnu dvalizt í Bandaríkjunum. Þar gekk hann undir hjartauppskurð á Mayo- sjúkrahúsi í Rochester. Upp- skurðurinn heppnaðist mjög vel og hefur Helgi nú hlotið fullan bata. — Að lokinni aðgerðinni fór ég til Kanada, sagði Helgi í örstuttu samtali við Alþýðu- blaðið. — Þar hitti ég ýmsa Vestur-íslendinga. Margir af þeim hafa komizt vel áfram í Kanada og njóta þar mikillar viðurkenningar og virðingar fyrir dugnað og góða menntun. Það er áberandi, að menn af íslenzku bergi brotnir hafa menntast mjög vel og hlotið hvers konar trúnaðarstöður, einkum á sviði menningarmála. íslendingar í Kanada hafa með sér náin félagssamtök og virð- ast rækja þjóðerni sitt af alúð og kostgæfni. Þegar hópurinn, sem nú er hér heima, vár í þann veginn að leggja af stað, héldu íslendingar í Winnepeg honum samsæti til að kveðja og biðja fyrir kveðjur heim. Kom þar glöggt í ljós hversu áhuginn fyrir íslandi og ís- lenzkum málefnum er mikill með þessu fólki. Margir af íslenzkum ættum eru búsettir á þessinn slóðum, sér í lagi í Nýja-Englandi, og tala þeir íslenzku sem aðalmál daglega og eru ótrúlega víð- lesnir I íslenzkum bókmenntum og fylgjast með mönnum og málefnum hér heima líkt og HELGI SÆMUNDSSON við. Mér virðist framtíð ís- lenzkunnar í Vesturheimi sæmilega örugg. Kennarastóll inn í íslenzkum fræðum við Manitobaháskóla hefur stór- fellt gildi í þessu efni, enda ágætlega skipaður þar sem er Haraldur prófessor Bessa- son. íslendingar lögðu fram stórfé til að koma þessum kennarastóli upp og árangur- inn er meðal annars fólginn í þvi, að fólk sem ekki hefur háskólapróf, sækir námskeið við háskólann til að nema eða fullnuma sig í íslenzkri tungu. Eitt seinasta dæmið um á- hrif og virðingu íslendinga í Kanada er, að dr. Thorlakson hefur verið skipaður ríkisstjóri í Manitoba. Thorlakson hefur um langt áraskeið rekið lækn- ingastofnunina Winnepeg Cli- nic, sem er orðlögð í Kanada og raunar miklu víðar. Hann lætur nú af þeim störfum, enda verður hann sjötugur í sumar, og þá er honum sýndur ein- hver mesti heiður sem Kan- adamanni getur hlotnazt. Eg var lengi í Minnesota. Þar er margt íslendinga við nám og störf, sér í lagi lækn- ar í framhaidsnámi. Þeir hafa allir valið beztu fáanleg sjúkrahús og verða sér úti um mjög góða menntun þó að hún sé kostnaðarsöm og þeim væri auðið að fá sérfræðipróf með miklu auðveldara hætti, ef þeir væru ekki jafn strangir í kröfum við sjálfa sig og stað ráðnir í að afla sér sem beztr- ar menntunar. Þetta virðist raunar einkenni á íslenzku læknunum, sem eru við fram- lialdsnám vestanhafs. íslendingar í öðrum störfum þarna geta sér líka gott orð, sagði Helgi að lokum. Bannað að gera kjallaraíbúðir NÝ byggingarsamþykkt fyrir Reykjavík tók gildi 1. apríl síðast liðinn. í henni eru allmörg ný- i mæli en sum þeirra eru aðeins staðfesting á reglum, sem mynd- ast hafa á þelm 20 árum, sem lið-. skylt að sjá um samræmi sé milli séruppdrátta. ★ Skyldur meistara er reynt að gera ákveðnari og verkaskiptingu milli þeirra greinilegri. in eru síðan síðast var samþykkt ( ★ Reglur eru settar um lág- marksfjölda bílastæða, leiksvæða o. fl. á lóðum, og gert ráð fyrir að hægt sé að leysa lóðarhafa undan slíkum kvöðum, ef hann Sigrún Jónsdóttir á nemendasýningunni (Mynd: JV). byggingarsamþykkt fyrir Reykja- vík. Blaðinu hefur borizt frétta- tilkynning frá byggingarfulltrúa, þar sem talin eru upp ýmis ný- mæli úr nýju byggingasamþykkt- inni, er þar m. a. skýrt frá því, að nú sé bannað að gera íbúðir i kjöUurum húsa. Helztu nýmælin eru talin hér á eftir: ★ Réttur til að gera teikningar til byggingarnefndar er þrengdur frá því sem var, og er nú bund- inn við húsameistara, bygginga- verkfræðinga og byggingafræð- inga, og þá, sem þegar höfðu hlot ið viðurkenningu nefndarinnar, þegar samþykktin öðlaðist gildi. ★ Séruppdrættir fyrir vatns- lögn, holræsalögn, hitalögn, raf- magnslögn og járnalögn skulu vera fyrir hendi og samþykktir áður en neðsta plata hússins er steypt og er þeim sem teikna hús greiðir andvirði þess lóðarhluta, er á vantar. ★ Almenn ákvæði eru sett um girðingar og gert ráð fyrir að þær megi fjarlægja, ef þær eru taldar óþarfar, til lýta eða rétt er talið að girt sé með tilteknum hætti, eða þær eru til trafala fyrir um- ferð. ★ Hitaeinangrun húsa er aukin Frh. á 10. sfðu* ÞING UNGRA JAFNAÐ- ARMANNA Í FINNLANDI SEX ÍSLENDINGAR sækja þing Sambands ungra jafnaðar- manna á Norðurlöndum, sem haldið verður í Björneborg- ekki langt frá Ilelsinki í Finnlandi dag ana 5.-7. júní. Sambandið heldur uppi þróttmikilli starfsemi — og beitir áhrifum sínum f mörgum málum, sem ungir jafnaðarmenn hafa ábuga á. Meðal annars tók sambandið ákveðna afstöðu með Loftleiðum í deilunni við SAS og sendi rikisstjórnum Norðurlanda ályktun þess efnis. Á þinginu verða flutt erindi um Frh. á 10. síðu. ALÞýÐUBLAÐIÐ — 4. júní ,1965 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.