Alþýðublaðið - 16.12.1965, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 13. desember 1965 — 45. árg. — 286 tbl. — VERÐ 5 KR.
HOUSTON, Texas, 15. desember (NTB-Reuter).
— Bandaríkj am enn náðu í dag mikilvægum áfanga í
tilraununum ti] að senda mann til tunglsins er Gem-
ini-geimförum þeirra tókst að hittast í geimnum.
Geimförin Gemini-6 og Gemini-7 flugu sambliða í
kvöld og voru aðeins tveir til þrír metrar á milli
þeirra og þar með hafa Bandaríkjamenn í fyrsta sinn
í sögu geimferða náð á sitt vald tækni, sem nauðsyn
leg er ef takast á að senda mann til tunglsins.
Gemini 6 var í fcvöld svo ná
lægt Gr.Tiini-7, að geimfararnir
Walter’, Sehirra og Thomas Staf-
ford sáu skeggið, sem þeir Frank
Borman og James Lovell hafa
safnað á 11 da'ga ferð umhverfis
jörðu.
Fintn
lög
Reykjavik, EG
ALÞINGI afgreiddi í gær
fimm frumvörp, sem lög til rík
isstjónnarinnar. Frumvörpin eru
þessi:
Frumvarp til laga um húsnæð
ismálastofnun riikisins, sem gerir
ráð fyrir stórfelldum lánahækkun
ura og ýmsum öðruim toreytingum
til hagshóta fyrir íhúðabyggjend
ur í isamræmi við yfirfýsingu rík
isstjórnarinnar frá í sumar.
Fi'umvarp um breytingu á al-
mannatryggingalögunum.
Frumvarp til breyttoga á lögum
um ríkisíramfærslu sjúkra manna
Og örkumla.
' Frumvarp um Igjaldaviðauka.
Fruimvarp til breytinga á vega
lögum, sem gerir ráð fyrir bækk
im á verði benzíns og hækkun
þungaskatts af tlieselbifreiðum.
Lokaundirbúningur Gemini-6
undir stefnumóti'ð við Gemini-7
ihófst laust fyrir kl. 18 að ís-
lenzkum tíma, og þá þegar sáu
þeir Schirra og Stafford ljósin
frlá Gemini-7. Þegar Gemilnii-6
var yfir Tananarive á Madagask
ar minnkaði Gemini-6 fjariægðina
mi'lli geimfaranna í 45 kílómetra.
Framh. á bls. 1*.
HJÓNIN Björn Eiríksson oq
Guðbjörg Jónsdóttir að Sjón-
arhóli við Reykjavíkurveg í
Hajnarfirði, hafa ákveðið að
gefa Fimleikafélagi Hafnar-
fjarðar (FH), hxiseign sína —
Sjónarhól — ásamt lóð þeirri
er lixisið stendur á og tveimur
bilskúrum, sexn á lóðinni
standa.
Formlega var gengið frá
þessari gjöf á lieimili hjónanna
mánudaginn þ. 13. desember
síðastliðinn, að viðstöddum
stjórnarmeðlimum FH, Birni
Sveinbjörnssyni, settum bæjar-
fógeta í Hafnarfirði og börn-
um þeirra öllum, nema einum
syni er var á síldveiðum. 13.
desember er giftingardagur
þeirra hjóna og hann kusu þau
til að ganga frá hinni höfð-
inglegu gjöf.
Fimleikafélag Hafnarfjarðar
fær húsið til frjálsra afnota,
þegar það hjónanna er lengur
lifir, er fallið frá.
Sem ástæðu fyrir höfðing-
skap sínum í garð FH, nefna
hjónin, að félagið hafi gengt
mikilvægu uppeldislegu hlut-
verki fyrir börn þeirra, sem
öll hafa verið starfandi í því.
Húsið Sjónarhóll er stórhýsi
13 sinnum ellefu metrar að
flatarmáli, en samanlagður
gólfflötur allra hæða og bíl-
skúranna beggja er um 600
fermetrar. Lauslega er áætlað
að húsið sé rúmlega 7 milljón
króna virði.
Fyrir hönd FH skrifuðu
þessir undir gjafabréfið: Axel
Kristjánsson, formaður FH,
Hallsteinn Hinriksson varafor-
maður og Finnbogi F. Arndal
gjaldkeri félagsins.
Birgir Björnsson frá Sjónar-
hól er þú þjálfari hins frækna
Björn Eiríksson undirritar
gjafabréf sitt, en þar segir, að
FH sé eigandi Sjónarhóls eftir
hans dag. Neðri myndin er af
Sjónarhól, sem ásamt lóð og
bílskúrum er metið á 7 millj.
handknattleiksliðs FH, sem oft
hefur orðið íslandsmeistari í
íþróttinni og er nú. Segja má,
að með gjöfinni verði í fram-
tíðinni gerbreytt allri aðstöðu
félagsins til iðkunar áliuga-
mála sinna og jafnvel mættí
ætla að hún ylli aldahvörfum
í íþróttalífi kaupstaðarins.
GEFA F.H. HÚS
A SJÚ MILU.