Vísir - 11.05.1960, Blaðsíða 1

Vísir - 11.05.1960, Blaðsíða 1
12 síður 12 síður 50. árg. Miðvikudaginn 11. maí 1960 105. tbl. Mynd þessi er frá óeirðunum í Durban, Suður-Afríku. Hún er tekin á mótum Syringe-Avenue og Berea-götu, þar sem lög- reglan hóf skothríð á mannfjöldann. Tryggvi Jónsson er aflakóngur 1960. Aflinn er 1222 1. auk þess sem kom í dag. í mar?ar aldir hefur 11. maí verið lokadagur vetrarvertíðar á Suðurlandi. I»ann dag héfur jafnan verið hávaði og gleð- skapur í verstöðvum, en nú er þessu öðru vísi farið. Hvergi er kaldið upp á daginn og að því er fréttaritarar síma er hann eins og hver annar virkur dag- ur, enda halda aflakóngar og þeir sem líklegir eru til að verða aflakóngar áfram róðr- um þótt lítið fiskist, til þess að bæta nokkrum kílóum á afla- lista sinn. Það er helzt í Reykjavík að vart verður við vertíðarlok, og befst nú vertíð hjá mörgum T landi sem skipti eiga við sjó- j menn. Það hefur verið annríki hja lögreglunni og hefur hún síðustu nætur tvíhlaðið og þrí- hiaðið kjallarann. Þess ber þó að geta að flestir sem þar hafa gist eru þeir sem notið hafa hins alkunna örlætis sjómanna. Vestmannaeyingar skipa nú ekki lengur öndvegið í afla- mennsku. Að þeirra dómi brást vertíðin. Helgi Bergsveinsson á Stíganda er aflakóngur í Eyj um að þessu sinni með 1100 lestir. Næstur er Óskar Mattías ,son á Leó með 1040 lestir. Ben- óný fyrrverandi aflakóngur er með tæpar 1000 lestir. Ólafsvíkingar geta í dag dreg ið fána að hún til heiðurs afla- kóngi landsins, Tryggva Jóns- ' syni skipstjóra á Stapafelli, er , aflað hefur 1222 lestir og þar j við bætist aflinn í dag. Nætur í Ólafsvík er m.b. Jón Jónsson, aflamagnið fékst ekki uppgefið í morgun. Framh. á 12. síðu. þiis. kréaa tekjur á þrem vikum. Vaðlaheiði lokaðist í dag. Akureyri L morgun. — Uppgripaafli heldur áfram við Grímsey, og hefur slíkt og annað eins ekki spurzt þar um sióðir í háa herrans tíð. Eitt heimili hefur fengið 100 þús. krónur í tekjur á rúmlega þrem vikum, en í Grímsey eru nú bú- sett um 70 manns. Aliur fiskaflinn fer í salt, og er nú Kaupfélag Eyfirðinga að setja á fót lifrarbræðslu á eynni. Ýmislegt fleira er á döfinni þar nyrðra. í undirbúningi er að byggja félagsheimili og skóla og dýpkunarskip er væntanlegt á næstunni. Alþingi hefir veitt 450 þús. krónur til framkvæmd- anna. Vaðlaheiði heíur verið lokað vegna aurbleytu, frost er nú íyrst að fara úr jörðu þar. — Hinsvegar er verið að ryðja Lágheiði til Ólafsfjarðar. gmlegra— skotin niður? Ef svo er, hvernig vildi þa5 þá tiS? Náðu Sovétríkin flugvélinni alveg óskemmdri? Mótmælaorðsending sovét- stjórnarinnar til Bandaríkja- stjórnar út af njósnafluginu var afhent í gær og tók sendifull- trúi Bandaríkjanna x Moskvu við henni. Ekki er á það minnst í henni, að málinu verði skotið til Öryggisráðsins, eins og upp- haflega var gefið í skyn. Gromyko utanríkisráðheiTa, sem afhenti orðsendinguna, og sendifulltrúinn, skiptust aðeins á nokkrum oi’ðum. Oi’ðsending- in mun verða bii’t í heild í dag. Kunnugt er þó, að í henni er því haldið fram, að það geti ekki vei’ið nein tilviljun, að flugvélin flaug inn yfir sovézkt land, heldur væri flugið sönn- un um að stefna Bandaríkjanna væri að auka viðsjár þjóða milli. Er varað við afleiðingum þess, að halda slíku áfram. Sovétstjói’nin áskilur sér rétt Sending frá meginlandinu Mistur hefur verið í lofti undangengna 2—3 daga og lxæg austlæg' átt víðast, þokusamt á morgnum, eink- um á ströndum, en köld er þokan á annesjum nyrðra, aðeins um 2 stig hitinn á Hornbjargsvita, en hér sunn- anlands var hitinn sumstað- ar 13 stig kl. 9 í morgun, t. d. á Hæli í Hreppum, og 11 stig hér í Reykjavík. Senni- lega fer nú austanáttin held- ur vaxandi. Um mistrið er það nánara að segja, að þetta er megin- landsloft, komið hingað sunnan úr álfu, mengað ryk- ögnum og sennilega miklu kolaryki. Þetta er sama loft og har er algengast, en hér á norðurslóðum er loft vanalega miklu hreinna. ] til gagnráðstafana og mælist til, að hætt sé slikum ögrunum, |svo að sovétstjórnin geti beitt sér að því að vinna að lausn al- þjóðlegra vandamála. Hótanir í garð smáþjóða. Krúsév forsætisráðherra hafði í fyrradag í hótunum við smá- þjóðir og hótaði hefniaðgerðum gegn stöðvum, sem njósnaflug- vélar Jegðu upp frá. Lincoln White sagði í gær fyrir hönd Bandaríkjastjórnai’, að það Vseri sérkennandi fyrir Rússa, að nota þetta tilefni til að hóta smáþjóðum eins og Norðmönn- um, Tyrkjum og Pakistönum árásum, þótt þeir hefðu ekkert til saka unnið í þessu máli. Endurtók hann fyrri yfirlýsing- ar þess efnis, að Bandaríkin myndu standa við allar skyld- bindingar sínar við sambands- þjóðir, sem haft væri í hótun- um við eða gei’ðar áráSir á. Tilkynningar Rússa grunsamlegar. Tilkynningar Rússa um þetta njósnaflug þykja meira en lít- ið grunsamlegar og ræða blöð út um heim um það í vaxandi mæli. Ef allt það er rétt, sem Krúsév sagði og fleira rétt, sem fram hefur komið, virðist væg- ast sagt mjög vafasamt, að flug vélin hafi verið skotin niður. Höfundur flugvélarinnar, sá, sem átti hugmyndina að henni og teiknaði uppdrátt að hinni fyrstu, en hann er búsettur i Kaliforníu, fullyrðir, að mynd- Framh. á 2. síðu. ★ Bandaríkjastjórn hefur gef- ið Alþjóðaskólanum í Vínar- borg 160.000 dollara. Nenx- endur í skólanum eru nú 247 — þar af 187 Banda- ríkjamenn. Alls eru nemar þar frá 22 þjóðum. Þotuöldin er gengin í garð, en hún er ekki komin langt á veg. Hér má sjá myndir af þeim furðuflugvélum, sem flugvéla- verkfræðingar gera ráð fyrir, að þjóti um háloftin að fáum árunx liðnum. Triton fór kringum jörð- ina í kafi á 84 dögum. Kom tvsvegss upp á yfirborð í ferðinni. Iíandaríski kafbáturinn Trit- on kom í gær upp að ströndum Delaware eftir að hafa farið kringum jörðina, oftast í kafi, á 84 dögum. Hann kemur í dag til New London í Connecticut en þaðan lagði liann upp í. sigl- inguna 16. febrúar s.l. Þetta er kjarnorkuknúinn kafbátur. Hann kom tvisvar upp á yfirborð sjávar, í annað skipti vegna veiks manns, er þyrla flutti til iands, og undir ströndum Portúgals til þess að héíðra minningu Magellans, sem fyrstur manna sigldi kringum jöi’ðina 1519—21. Fór kafbáturinn mikið til sömu leið, um 36,000 sjómílna leið. Triton er 7750 smálestir og rhun vera stæi’sti kjarnoi’ku- knúni kafbátur heims.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.