Vísir - 18.05.1960, Blaðsíða 1

Vísir - 18.05.1960, Blaðsíða 1
12 síður V 12 síður 50. árg. Miðvikudaginn 18. maí 1960 110. tbl. Fyrir nokkrum dögum kviknaði í ibúðarhúsi í Höfnúm, og var slökkviliðinu á Keflávíkurflugvelli gert aðvart um eldinn. — Sendu þeir þegár lið á staðinn og tókst því fljótlega að ráða niðurlögum eldsins, sem var í litlu einnar hæðar timburhúsi. í slökkviliði flugvallarins eru bæði bandarískir menn og ís- lenzkir, og birtist hér mynd af nokkrum þeirra eftir að slökkt hafði verið í húsinu í Höfnum. Kjarnorkuvélin í Savannah hefur verið prófuð. Eyðir 60 kg. af kjarnkleyfu efni á 3 árum. Framkvæmd hefur verið fyrsta prófun á kjarnavélinni, sem sett verður í kaupfarið Savannah. Fór prófun þessi fram hjá fyrirtækinu Babcock & Wilcox í Virginíu, sem smíðar vélina fyrir kjarnorkunefnd Banda- ríkjanna. Var þess getið, að komið hefði verið af stað fyrstu keðjuverkun úraniums í vélinni þ. 8. apríl. Þegar frekari prófanir hafa farið fram á vélinni, mun hún verða sett í skipið í sumar, þar sem það er smíðað í Camden í New Jersev-fylki, en síðar á ár- inu verður skipið afhent kjarn-j orkunefndnni og siglingamála-J nefnd Bandaríkjanna til próf- ana í hafi. Uraníum-kjarninn í vélinni vegur 7000 kg. Skipið á að geta siglt í 3 ár eða um 300,000 sjó- mílur án þess að skipt sé um eldsneyti, en á þessu tímabili eyðast aðeins 60 kg. af hinu kjarnkleyfa efni og úrgangur- inn verður m. a. 18 kg. af verð- mætu plutoníum. Savannah er 22,000 lestir og á að geta flutt 60 farþega og 9500 lestir varnings. Rússar njósna yfir Pakistan. Sovézkar flugvélar fara iðu- lega inn fyrir Pakistan í njósna- skyni. Svo sagði forseti landsins við fréttamenn í London. Hann yppti öxlum, er þeir spurðu hann, hvort engar gagnráðstaf- anir væru gerðar. Forsetinn sagði aðeins: Til hvers væri það? Njósnir í V.-Þýzkalandi. Yfir 18 þúsund njósnarar handteknir þar á 8 árum. Innanríkisráðherra Vestur- Þýzkalands tilkynnir, að á und- angengnum 8 árum hafi yfir 18 þúsund njósnarar Sovétríkj- anna verið handteknir í V.-Þ. Af þeim voru 1799 dæmdir til fangelsisvistar, — hinum var sleppt. Tilkynningin var aðal- fréttin í vestur-þýzku blöðunum um seinustu helgi. Skýrslan nær yfir tímabilið frá 30. ágúst 1951 til 31. des. 1959. 80% njósn- aranna komu frá hernámssvæði Rússa í Þýzkalandi. — Árið 1959 voru 3051 handteknir fyrir njósnir, 264 frá Sovétríkjunum, 2325 frá austur-þýzka hernáms- svæðinu og 462 frá öðrum kom- múnistalöndum. Fyrstu 3 mánuði þessa árs hafa 588 menn verið handteknir fyrir snjósnir í V.-Þýzkalandi. ðuit Krúsév§ yekur TÍðbjoð. Hfi'fiii er fordæmd livairveí ifia í vesteæimm löndum. Æðsíu rnenn á förum frá París. Framkoma Nikita Krúsévs eftir að hann kom til Parísar til þess að sitja fund æðstu manna, sem aflýst hefnr nú verið, hefur vakið viðbjóð meðal forustumánha vestrænu bjóðanna og cr ahnennt fordæmd. lii í helztu blöðum Bretlands og annarra vestrænna landa kem- ur fram sú ákveðna skoðun, að Krúsév hafi ekki komið til Par- ísar til samkomulagsumleitana. Times er meðal þeirra blaða er halda því fram, og telur framkomu hans í gær móðg- andi, er hann fór burt frá París meðan verið var að gera tilraun til að bjarga ráðstefnunni. I augum milljóna manna út um allan heim, segir blaðið, gera menn þær kröfur til þjóðaleið- toga, að þeir hagi sér virðulega — það séu lágmarkskröfur til þeirra, sem hafi örlög þjóðanna í höndum sér. í ýmsum blöðum kemur fram, að enginn þjóðarleiðtogi hefði getað orðið við kröfum þeim eða útslitakostum Krúsévs til Eisenhowei’s, að hann bæðist afsökunar. Einna harðorðast allra brezkra blaða er verkalýðs- blaðið Daily Herald, sem seg- ir um Krúsév, að hann hafi nú sýnt og sannað, að hann sé ómerkilegur áróðurskarl, haldinn minnimáttarkennd. Menn eru þeirrar skoðunar, að allt hafi verið skipulagt fyr- ir fram. U2 á að hafa verið skot in niður 1. maí — ekki er til- kynnt neitt um atburðinn fyrir 5. maí, og þá til þess smám saman að herða áróðurinn unz hann náði hámarki 16. maí. Bent er á, að hann sé notaður sem átylla til að ónýta fund æðstu manna, — njósnaflugið hefðu Bandaríkin og Sovétríkin átt að getað gert út um sín í milli, ef það hefði verið vilji Krúsévs. Tito forseti Júgóslavíu hvatti eindregið til þess í gær, að njósnaflugið væri ekki notað Blóóugar óeirðir í Leopoldvilðe. Til blóðugra óeirða kom í s.l. viku milli kynþátta í úthverfi í Leopoldville, Belgiska-Kongó. Þrír menn biðu bana. Vara- lögregla var send á vettvang og herflokkar og útgöngubann sett. — Kosningabarátta er haf- in, en eins og kunnugt er fær landið sjálfstæði 1. júlí. ! sem átylla — en það ba'r engan árangur. í fyrri fregnum var sagt: Hætt hefur verið við fund æðstu manna. Tilkynningar um þetta voru birtar síðdegis í gær í París. í tilkynningu leiðtoga Vesturveldanna segir, að ekki hafi verið kleift að hefja athug- anir og viðræður á fundi æðstu manna um þau vandamál, sem samkomulag hefði verið að ræða, vegna afstöðu og fram- komu Krúsévs forsætisráðherra Sovétríkjanna. Leiðtogar Vesturveldanna segjast fyrir sitt leyti vera sann- Framh. á 7. siðu. SV gola og rign- ing með köflum. Kl. 9 í morgun var vestan og norðvestan hægvðri um allt land, rigning á stöku stað vestan lands, en bjart- viðri sunnan lands og austan. Hiti var 8—13 stig. I Reykjavík var suðvestan gola og 10 stiga hiti. Skyggni 30 km. Loftvog 1028 millib. Úrkoma engin síðastl. nótt. Hæð er yfir sunnanverðu íslandi og grunn lægð yfir Grænlandi. Veðurhorfur í Reykjavík og nágrenni: Suðvestan gola og rigning með köflum. Unglingarnir hafa oft gaman af að sýna, hversu fyndnir og slcemmtilegir þeir eru, og sýnir breyting á umferðarskilti við Þverholt, að þetta má sýna með ýmsum hætti. Til hvers er bróðan? Bandarískir vísindamenn eru helzt þeirrar skoðunar, að með því að skjóta Sputnik IV. á loft hafi ekki verið stigið nema lítið skref í áttina að því marki, að senda mannað geimfar út í geiminn. Furðu þeirra vekur, að hafa brúðu í farþegaklefanum — það hafi ekkert gildi með tilliti til líffræðilegra rannsókna. En öðru máli væri að ^fegna, ef lif- andi dýr hefði verið haft þar. Og einnig vekur það fui'ðu, að eftir fyrstu fregnum Rússa virt- ist svo, sem gervihnötturinn með farþegaklefanum myndi eyðast í gufuhvolfi jarðar, án tilraunar til þess að ná honum aftur til jarðar. Gengu í það heilaga, er fimmburar fæddusf. Urðu þá landskunn og hófust úr fátækt. Hinn 8. þ. m. eignuðust hjónaleysi í Mexíkó fimmbura, en þau áttu tvö börn fyrir. Fjór- burar voru á lífi og við góða heilsu er síðast fréttist, drengur og 3 stúlkubörn. Annar dreng- urinn dó þegar eftir fæðingu. Hjónaleysin urðu þegar landskunn, Paula Guerrero Munga, 43ja ára og Gilbert Diaz Rosas, 28 ára, en hann er vinnumaður í sveit, og hefur ekki haft stöðuga atvinnu. Og nú eru þau búin að láta gefa sig saman í borgarlegt hjóna- band og eiga kirkj ubrullaup- framundan. Með tilkomu fjórburanna jlosnuðu þau úr örbirgð. Þau urðu landskunn á svipstundu — ríkið sér fyrir börnunum — og Gilbert fékk fastan starfa Jí fyrsta skipti á ævinni. Diaz segir annars, að þau hefði verið búin að láta gefa sig saman fyr- ir löngu, ef þau hefðu ekki ver- ið bláfátæk og tengdaforeldrar hans verið því mótfallnir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.