Vísir - 04.04.1961, Blaðsíða 7
Ví SIR
Þriðjudaginn 4. apríl 1961
1 desembermánuði s.l. var
Emil H. Eyjclfssyni, lektor í
islcnzku mr.li oir bókmcnntum
við Parísarháskóla, boðið að
balda fyrirlestur um íslenzkt
efni við háskólann í Caen í
Normandí.
Ákveðið var, að fyrirlestur-
inn skyldi fara fram að kvöldi
hins 28. febrúar, og að efni
hans yrði „ísland, sagnalandið“
(Islande, terre des sagas). —
Stjórn háskólans í Caen bauð
og íslenzkijn Parísarstúdent-
um að koma þennan dag í heirn
sókn til borgarinnar.
Ferðin var farin á settum
degi. Tóku þátt, auk Emils:
Catherine K'unstlich, unnusta
hans, og úr íslenzku náms-
mannanýlendúrim': Andri ísaks
son, Elín Norðdahl, Jes Einar
Þorsteinsson og Vilhjálmur
Bergsson. Með hópnum var í
för Cérard Mantion, aðstoðar-
kennari í norrænum fræðum
við háskólann í Caen.
Við komum til Caen um fjög-
urleytið seinni part dagsins og
notuðum birtuna til að skoða
borgina ofurlítið. Caen ger-
eyddist nær í innrás Banda-
manna 1944, en liefur nú veriö
reist úr rústum. Borgin er því
,,unglegri“ en títt er um fransk-
ar borgir. Hið merkasta af
gomlum húsum eru nokkrar
kirkjur og ævaforn kastali. —
Ymiss þessara húsa skemmdust
þó i loftárásum, en hafa verið
reist á ný eftir gömlu fyrir-
myndinni.
Að lokinni göngu um bæinn
var haldið í stúdentamötuneyt-
íð, þar sem okkur hafði verið
boðið að borða. Snæddum við
prýðisgóðan mat „fyrir innan“
í skemmtilegum hópi franskra
og skandinavískra stúdenta.
Klukkan níu var gengið nið-
ur í háskóla til að hlýða á Emil.
Og hafi eithvert okkar kviðið
því, að í Caen vildu menn ekki
heyra talað um ísland, þá kom
það nú í Ijós, að óttinn var á-
stæðulaus. Fyrirlestrarsalurinn,
æðistór, var svo troðfullur, að
þar var ekki nokkurt sæti laust,
þeg'ar við komurn.
Hr. Frédéric Durand, pró-
fessor í Norðurlandamálum og
bókmenntum, setti samkomuna,
kynnti Emil, og gaf honum síð-
an orðið. Emil þakkaði fvrst
boðið í eigin nafni og' f. h. ís-
lenzku „sendinefndarinnar“, og
hóf síðan mál sitt. Ræddi hann
aðallega um Þjóðveldi íslend-
inga, um íslendingasögur og
um tilurð sagnanna. Ernil tal-
aði í rúma klukkustund og' fékk
langt og hjartanlegt klapp að
lokum.
Að fyrirlestrinum loknum
voru sýndar tvær stuttar kvik-
myndir um ísland, og síðan
slei-t Fr. Durand samkomunni.
Eftir stutt „íslandshóf“ hélt
hvert okkar til síns heima, en
þessa nótt gistum við hjá „kan-
verskum" fjölskyldum og ein-
staklingum.
Morguninn eftir hittumst við
í félagsheimili stúdenta. Það-
an fórum við að skoða nunnu-
í klaustur í borginni, og síðan í
háskólann, sem M. Colin, há-
skólaritari, fylgdi okkur um.
Húsakynni háskólans í Caen
eyðilögðust í stríðinu, en síðan
hafa stofnuninni verið reist ný
hús, og er liún nú í aíbragðs-
húsakynnum norðarlega í borg-
inni. í nánd við háskólann hafa
verið reistir stúdentagarðar.
Vinnuskilyrði virðast vera afar
góð, bókasafn g'ott. Þarna cr
nóg plássa til allra hluta, og
eru það óneitanlega viðbrigði
frá París.
| Um hádegi var stutt kveðju-
hóí hjá rektor. Lýsti hann á-
nægju sinni yfir komu okkar,
en við þökkuðum hinar inni-
legu viðtökur. Síðan var kvaðzt
og héldum við heim til Parísar
skömmu síðar.
| Það vakti athygli okkar í Ca-
en, hversu mikill áhugi ríkir á
norrænum fræðum — og L;-
landi. Stúdentar í norrænum
fræðum eru á annað hundrað,
þ. e. allmiklu fleiri en í sjálfri
París. I-Iáskólinn í Caen er að
verða miðstöð franskra mennta-
stofnana að því er varðarkenslu
og rannsóknir í ensku og Norð-
urlandamálum og bókmennt-
Matthías Svcinsson, frá ísafirði, sigraði i bæði 15 og 30 km. göngu. Hér sést liann koma í mark,
og eins og myndin ber með sér,
ísfirðinga í boðgöngunni.
bá v'or-u áliorfendur margir.
Skíðalandsmótið
Matthías gekk auk þess í sveit
(Ljósm. Pétur Þorleifsson)»
2. Svanberg Þórðarson, Rvík.
3. Einar Valur Kristjánss., ísaf.
Framh. af 1. síðu.
Stökk:
1. Sveinn Sveinsson, Siglufirði.
2. Valdimar Örnólfsson, Rvík
3. Svanberg Þórðarson, Rvik
Svig karla:
fl. Kristinn Benediktsson, ísaf.
2. Svanberg Þórðarson, Rvík.
3. Einar Valur Kris'tjánss., Rvk.
Flckkasvig:
1. ísfirðingar.
I .'
Norræn tvíkeppni:
1. Sveinn Sveinsson, Sfglufirði
Svig kvenna:
1. Jakobína Jakobsdóttir, ísaf,
2. Marta B. Guðmundsd., Rvík
3. Krisiín Þorgeirsd., Sigluf.
Stórsvig kvenna:
1. Kristín Þorgeirsd., Sigluf.
2. Jakobína Jakobsdóttir, ísaf.
3. Marta B. Guðmundsd., Rvík.
Alpatvíkeppni kvenna:
1. Jakobína Jakobsdóttir, Rvík.
2. Kristín Þorgeirsd., Sigluf.
3. Marta B. Guðmundsd., Rvík.
Stórsvig karla:
'1. Kristinn Benediktsson. ísaf.
2. Jóhann Vilbergsson, Sigluf.
3. —4. Svanberg Þórðars., ísaf.
Árni Sigurðsson, ísaf.
Alpatvíkeppni karla:
1. Kristinn Benediktsson,
Stórsvig unglinga:
1. Davíð Guðmundsson, sem
einnig' varð nr. 1 í Alpa-
keppni unglinga. 4
Svig unglinga:
11. Hafsteinn Sigurðsson, ísaf.
ísaf. Nr. 2 í Alpakeppninni.
í „íslandshófinu“ eftir fyrirlesturinn við Caen-háskóla. Fremst
á myndinni ræðast þeir við Ernil H. Eyjólfsson, lcktor við
Parísarliáskóla, og Andri ísaksson, scm stundar nám við sama
skóla, en á milli þeirra sér í Elínu Norðdahl. Aftarlega, næst-
yztir til hægri, sjást þeir Vilhjáhnur Bergsson og Jes Einar
Þorstcinsson. (Ljósm. Jcan Vaumoron).
um. Við háskólann starfa lekt-
!orar í norsku, sænsku og
dönsku, en ekki í íslenzku. —
Stjórn háskólans, og einkum hr.
Durand, prófessor, hafa afar
mikinn áhuga á að fá að skól-
anum íslenzkan lektor, og telja
það orðið bráðnauðsynlegt, þar
sem stúdentar eru svo margir
Væri sannarlega skemmtilegt,
ef íslenzk stjórnarvöld tækju
sig til og byðu franska mennta
málráðuneytinu að senda lekt-
or til Caen, og greiða hluta af
launum hans.
Þessum línum viljum við
Ijúka með því að þakka enn hin
ar hjartanlegu viðtökur, sem
við fengum í Caen. Einkum
þökkum við Daure, rektor, Dur-
and, .prófessor og Mantion, að-
stoðarkennara í norrænum fræð
um, Larsen, danska lektornum,
Vaumoron, eðlisfræðingi og
kvikmyndasmið, Journaux, þró-
fessor í landafræði, — og bret-
ónsku stúdínunni, sem fylgdi
okkur um borgina.
Jakobína Jakobsdóttir frá ísafirði sigraði í
önnur í Stórsviginu og hlaut fyrsta sætið
(Ljósm.
svigi kvcnna, varð'
í alpatvíkeppninni.
Pctur Þorleifsson).
KristUin Benediktsson, frá ísafirði, sigraði í svigi og stórsvigi
karlu. Hann stóð sg nijög vel, og er nú sennilega bczti svig-
niaður landsins. Ilann hefur dvalið við keppni og æfingar í
Austurríki að undanförnu. Kristinn hlaut því ltka fyrsta sætið
í alpatvíkcppni karla. (Ljósnt. Pétur Þorleifsson)^,
f'rahh lan ds bróf:
:a.£í'.
fræðast um Island.
Islenzki lektorinn við Parísarháskóla
flutti fyrirlestur.