Vísir - 23.09.1961, Blaðsíða 5

Vísir - 23.09.1961, Blaðsíða 5
Laugardagur 23. sept. 1961 VÍSIR & Fast við vellandi hverinn sat Haukdælahöfðinginn, Sigurður Greipsson, á rör- leiðslu og beið þess með stóískri ró, að hverinn sýndi á sér lífsmark sem um munaði. Hann var þá nýlega búinn að láta grænsápuslatta í hverinn fyrir þýzkt ferða- fólk, sem þarna var komið til að sjá íslenzkt hveragos. Hverinn vall ekki mikið, en hvíta sápufroðan var á sí- felldu iði á yfirborðinu. Sig- urður sat með skóflu í fang- inu og horfði niður í hver- inn, undan slútandi húfu- barðinu. Fólkið stóð allt í kring og beið. Það virtist ætla að verða lön’g bið. Hver- inn heitir Sóði. Blaðamaðurinn gekk til Sigurðar: Er langt þangað til hann gýs? ----- Það kemur, sagði hann með hægð, án þess að líta upp. Hinn nýi forsætisráðherra Brazilíu heitir Tancredo Ne- ves og er jafnaðarmaður. Hann er fæddur 4. marz 1910 og er lögfræðingur að mennt. Hann var dóms- málaráðherra í stjórn Getu- lius Vargas forseta, sem neyddur var til þess að biðjast lausnar og framdi síðan sjálfsmorð (1954). Eft- ir það var Neves banka- stjóri. Hann var stuðnings- maður Kubitscehek forseta (1956—1961). Ný húsgagna- verzlun. Á ^LAUGAVEGINUM, í ný- byggðu húsi, beint á móti rit- stjómarskrifstofum Vísis er búið að opna nýja húsgagna- verzlun, sem kallast Húsbún- aður hf. Að verzlun þessarri standa um 30 aðilar, og mun verzlun- in kappkosta að hafa ætíð á boðstólum fjölbreytt úrval hús gagna og ýmissa muna til hí- býlaprýði. Hvatamenn að stofn un fyrirtækisins eru allt viður kenndir fagmenn í húsgagna- iðn, húsgagnasmiðir, bólstrarar og húsgagnaarkitektar. Sveinn Kjarval, húsgagna- arkitekt, verður ráðunautur verzlunarinnar og til viðtals við viðskiptavini hennar eftir umtali. Páll Guðmundsson, hús gagnaarkitekt hefur verið ráð- inn verzlunarstjóri. Með því að hafa þannig tvo húsgagnaarki- tekta á sínum snærum hyggst verzlunin geta veitt viðskipta- vinum sínum margvíslegar upp lýsingar og leiðbeiningar um allt það er lýtur að híbýlaprýði. Verzlunin er á Laugavegi 26, í Olympía-húsinu, á götuhæð. jndir kötlum — Hvers vegna er Geysir ekki látinn gjósa? — Viltu borga? — Borga hvað? — Sápuna, auðvitað. — Hve mikið? — Þúsund krónur. — Nei. — Hvaðan ertu? spurði Sigurður um leið og hann leit upp, eitt augnablik, og virti blaðamanninn fyrir sér þar sem hann beygði sig yfir hvpraherrann. Honum vat' sagt það. „Við erum með feg- urðardrottningu íslands, sagði þá ljósmyndarinn. — Ég hef ekki séð hana. — Þú hefur heldur ekki litið upp, sagði blaðamaður- inn. — Ég finn það strax. Nú tók hverinn að vella ákafar, og allir fundu á sér að gos var í aðsigi. Fólkið byrjaði að hörfa. — Ekki að ganga aftur á bak, kallaði Sigurður án þess að líta upp. — Segið það fólkinu, bætti hann við, og virtist vera að áminna leið- sögumenn þýzka fólksins. Allt í kringum hverinn voru heitar smásprænur, og það var stórskaðlegt að stíga fæti ofan í þær. En fólkið gætti sín, um leið og það hörfaði. Sigurður hreyfði sig ekki. — Er hann að koma til? — Þetta tekur allt sinn tíma, sagði Sigurður, og allt af jókst hreyfingin, vellið og sogið í hvernum. Framkvæmdastjóri Húsbúnað- ar er Helgi Bergsson, en stjórn arformaður Guðmundur Páls- son. Biskup endurvigir Selárdalskirkju. Á MORGUN verður hátíðar- messa í Selárdalskirkju í Arn- arfirði. Verður kirkjan þá end- urvígð. Hefur farið fram gagn- gerð viðgerð og endurbygging. Var þess mikil þörf, því að kirkjan er byggð í sérstökum og fögrum stíl, en hún var orð- in hrörleg. Engu var breytt í stíl eða gerð kirkjunnar og all- ir óskemmdir viðir látnir standa. Þykir viðgerðin hafa tekizt með ágætum. og kirkj- an sögð hið fegursta guðshús. Selárdalskirkja hefur verið lénskirkja og því í eigu og um sjá ríkissjóðs, en hefur nú ver- ið afhent söfnuði til eignar og varðveizlu. Biskupinn yfir ís- landi, séra Sigurbjörn Einars- son, framkvæmir vígsluna. Jafnframt verður minnzt 100 ára afmælis þessarar merku kirkjubyggingar. Blaðamaðurinn ætlaði að snúa sér frá, en Sigurður sagði: Bíddu. Blaðamannin- um var um og ó, en lét sig þó hafa það að bíða. Hverinn var byrjaður að taka smá- hopp. Svo magnaðist hann skyndilega. Sigurður stóð á fætur, gekk hægum skrefum þrjá — fjóra metra í burtu og leiddi blaðamanninn með ) sér.. Það mátti ekki seinna vera. Hverinn tók skyndilega þungt viðbragð og spýttist upp úr holunni. Blaðamaður. inn ætlaði að leggja á flótta, en Sigurður varð fyrri til og greip þéttingsfast í hægri handlegg hans. — Vertu kyrr. Þetta varð 10—15 métra gos. Svo datt hveravatnið niður í holuna sína aftur og sogaðist þaðan eitthvað nið- ur í holugöngin. Neðan úr holunni heyrðust hljóð, sem voru eins og sambland hvins og dynkja. :— Hvaða hljóð er þetta? spurði lítil stúlka. — Nú er hann að moka á katlana, anzaði Sigurður. Um næstu helgi hefst 21. Evrópumótið í bridge. Móts- staðurinn er að þessu sinni hinn frægi baðstaður á S.-Englandi, Torquay. ísland á þátttakend- ur í báðum flokkum að þessu sinni og eru það: Opni flokkurinn: Stefán J. Guðjohnsen, Eggert Benónýs- son, Guðlaugur Guðmundsson, Jóhann Jónsson, Lárus Karls- son og Sveinn Ingvarsson. Kvennaflokkur: Laufey Þor- geirsdóttir, Hugborg Hjartar- dóttir, Magnea Kjartansdóttir, Margrét Jensdóttir, Ósk Krist- jánsdóttir og Vigdís Guðjóns- dóttir. Fararstjóri íslenzka flokks- ins verður Ólafur Þorsteinsson. Dregið hefur verið um röð keppenda og er hún eftirfar- andi: Opni flokkurinn 1. Svíþjóð 2. Belgía 3. Portúgal 4. Holland 5. Þýzkaland 6. ísland 7. Noregur 8. Ítalía 9. Spánn 10. Egyptaland 11. Líbanon 12. Danmörk 13. Finnland 14. England 15. Frakkland 16. Sviss 17. írland Sigurður við katlana. 1 Kvennaflokkurinn 1. Frakkland 2. Finnland 3. ísland 4. Noregur 5. írland 6. Svíþjóð 7. Egyptaland 8. Belgía 9. England 10. Þýzkaland 11. Holland Eftir keppnistöflunni mætir fsland hinum þjóðunum í þess- ari röð: Opni flokkurinn: Frakkland, frland, ftalía, Hol- land, Belgía, Egyptaland, Dan- mörk, England, Sviss, Spánn, Noregur, Þýzkaland, Portúgal, Svíþjóð, Líbanon og Finnland. Kvennaflokkurinn: England, Holland, írland, Frakkland, Belgía, Þýzkaland, Svíþjóð, Noregur, Finnland, Egyptaland. Spilað verður dagana 24. september til 5. október og munu daglega birtast fréttir frá mótinu í blaðdnu. Birt verða úrslit leikja, nöfn þeirra sem spila einstaka leiki okkar og staðan í mótinu frá degi til dags. Spilamennskunni er hagað þannig að um eftirmiðdagana er spilaður einn leikur í báð- ^ um flokkum en á kvöldin hálf- ur leikur í opna flokknum. Mótið ver^ur sett laugardag- inn 23. september með hana- stélsveizlu kl. 18,30, en daginnj eftir hefst spdlamennskan. —| Hinn 29. september er skemmti- ferð og 3. október sýnir kon- unglegi balletflokkurinn ,Svana vatnið1. Fimmtudaginn 5. okt. kl. 22 verður verðlaunaafhend- ing og dans. Bridge-Rama verður starf- rækt alla daga mótsins og verða þar gagnrýnendur margir af frægustu spilamönnum Eng- lendinga. Terence Reese og Harold Franklin eru á meðal þeirra. Einnig verður gefið út dagblað í sambandi við^mótið, sem í munu birtast helztu úr- slit og skemmtilegustu spilin. íslenzka bridgefólkið fer ut- an í dag og óskar þátturinn þeim góðs gengis í erfiðri keppni. Rafvirki slasast. Síðdegis í gær var komið með Jón Ólafsson rafvirkja, Óðins- götu 22, í sjúkrahúsið í Kefla- vík. Hafði hann slasazt við vinnu sína í flugskýli á Kefla- víkurflugvelli. Var Jón að vinna við teng- ingu víra, sem voru með full- um straumi á, 4000 voltum. Smáhlaup hafði orðið, og við það brenndist Jón mjög á hönd- um og einnig nokkuð á andliti. Sagði læknir sjúkrahússins blaðinu í morgun, að Jón væri illa brenndur, og væri líðan hans eftir atvikum. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.