? ? Utgefandi: Skýrslutæknifélag Islands, Reykjavík Ritnefnd: öttar Kjartansson, ábm. Oddur Benediktsson Grétar Snær Hjartarson l.tbl. 1.árg.nóvember 1970 Öll réttindi áskilin. FÉLAGSBRÉF SKrRSLUTÆKNIFÍLAGSINS Skýrslutæknifélagið sendir nú" félagsmönnum fyrsta tölu- blaðiö af félagsbréfi, sem hlotiö hefur nafnið TÖLVUMÁL. TÖLVUMÁL koma í stað eldra forms á fundarboðum og öðrum tilkynningum til félagsmanna. Auk þess er vonast til að þau geti orðið vettvangur umræðu og fróðleiks á sviði félagsmála og tölvutækni. Vel væri, ef félagsmenn legðu til efni í blaðið eða gæfu ritnefndinni gagnlegar bend- ingar í því sambandi. Framtíð þessarar útgáfu er mjög undir viðtökum og áhuga félagsmanna komin. TÖLVUMÁL fara ekki geyst af stað. Vonandi segir það þó ekki alla sögu um framhaldið. Ef til vill á hér eftir að sannast, að "mjór er mikils vísir"? FÉLAGSFUNDUR Félagsfundur verður í Norræna Husinu, þriðjudaginn 9. nóvember 1976. Hann hefst kl. 14.30. Á fundinum verður fjallað um málefnið "centralisering decentralisering"¦ Framsöguerindi um efnið flytur Jon Þór Þórhallsson, forstöðumaður. Að loknu framsöguerindi verður efnt til hringborðs- umræðna um málefnið. Þeim stjórnar Einar Pálsson, forstjóri. Þátttakendur í hringborðsumræðum munu væntanlega túlka mismunandi sjónarmið til málefnisins, sem einmitt hefur verið mjög til umræðu nú á síðustu misserum. Eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna. Að loknum hringborðsumræðum mun félagið bjóða fundarmönn- um til að rabba um niðurstöður fundarins, eða önnur áhuga- mál, yfir góðum kaffibolla. AÆTLUN UM FÉLAGSSTÖRF Veturinn 1976-1977 eru félagsfundir Skýrslutæknifélagsins áætlaðir þannig: 9.11.1976 Centralisering - decentralisering. og hringborðsumræður. Erindi