Vísir - 24.04.1962, Blaðsíða 5
Þriðjudagurinn 24. apríl 1962.
5
V'SIR
HátíBlegt aímæli
Kiijans í gær
Sextugsafmæli Nóbelskáldsins |
Halldórs Kiljans Laxness var j
haldið hátíðlegt á þrem stöðum
í Reykjavík í gær — að afmælis-1
barninu f jarstöddu. Það voru:
bókaútgáfan Helgafell, bók-1
menntafélagið Mál og menning, |
og Ríkisútvarpið, sem minntust
afmælisins sérstaklega.
Kiljansafmæli.
Ragnar Jónsson forstjóri
Helgafells efndi til „Kiljansaf-
mælis“ í samkomuhúsi Háskól-
ans kl. 2 síðdegis í gær, og var
það mjög fjölsótt, enda mikil
tilhlökkun að sjá leikna marga
kafla úr nokkrum sögum Kilj-
i ans. Hátið þessi hófst með
ávarpi menntamálaráðherra,
Gylfa Þ. Gíslasonar, og þarf ekki
að rekja efni þess, því að það
var flutt aftur í afmælisdagskrá
Ríkisútvarpsins um skáldið í
gærkvöldi. Var gerður góður
rómur að ávarpi ráðherrans, og
að því loknu var byrjað að leika
þætti úr verkum Halldórs, sem
Lárus Pálsson hafði valið og sett
saman, og stjómaði leiknum og
lék sjálfur mörg hlutverk. Aðrir
leikendur voru Helga Valtýsdótt
ir, Haraldur Björnsson og Rúrik
Haraldsson. En leiknir voru
kaflar úr sögunum Paradísar-
heimt, Heimsljósi, Brekkukots-
annál, Sölku Völku og íslands-
klukkunni. Vakti leiksýning
þessi mikla og innilega hrifn-
ingu, og verður nánar sagt frá
afmælinu í blaðinu á morgun.
Margir listamenn, skáld og
menntamenn voru meðal gesta.
Forseti íslands og forsetafrú
voru og viðstödd.
Afmælissýning.
Þegar lauk afmælishaldinu í
‘Háskólabíóinu, var kl. 5 síðdegis
opnuð sýning á vegum Máls og
menningar í Snorrasal. Flófst sú
sýning i gær með því að sýnd
var ný kvikmynd, sem Ósvaldur
Knudsen hefir gert um Halldór,
texti er saminn og fluttur af dr.
Kristjáni Eldjárn og tónlist eftir
Magnús Blöndal Jóhannsson. A
sýningu þessari eru allar bækur
Halldórs á íslenzku og fjöldi er-
lendra þýðinga. Þá eru sýnis-
horn handrita, blaðagreinar og
1 tímarita eftir Halldór og um-
! sagnir og greinar um hann úr
íslenzkum og erlendum blöðum. j
Uppsetningu sýningarinnar
gerði Gísli Björnsson teiknari.
Síðast en ekki sízt er að geta
þess, að á sýningunni er ný
mynd, sem Sigurjón Ólafsson1 * 3 4
myndhöggvari hefir gert. Sýning ;
in verður opin í viku kl. 2—10
síðdegis.
Höll sumarlandsins.
Ríkisútvarpið hafði og afmæl-
isdagskrá helgaða Halldóri sex-
tugum. Fluttu fyrst ávörp Gylfi
Þ. Gíslason menntamálaráðherra
og Steingrímur J. Þorsteinsson
prófessor. Þá söng Þuriður Páls-
dóttir Unglinginn í skóginum
eftir Jórunni Viðar (sem lék und
ir) og Vögguvísu eftir Jón Nor-
dal, Ijóðin eftir Kiljan. Loks var
Höll sumarlandsins færð í leik-
búning af Þorsteini Ö. Stephen-
sen, sem og var leikstjóri, en 1
Jón Þórarinsson samdi tónlist og
stjórnaði flutningi hennar. Aðal-
hlutverk léku Lárus Pálsson,
Kristbjörg Kjeld, Róbert Arn-
finnsson.
Kiljan í Kaupmannahöfn.
Sem áður segir, var Halldór
Kiljan sjálfur víðs fjarri, hann
á skákþingiuu
Halldór Kiljan Laxness skáld.
(Ljósm.: Þorst. Jósepsson).
var úti í Kaupmannahöfn á af-
mælisdaginn. íslenzkir stúdentar
í Höfn héldu honum samsæti
og las hann fyrir þá upp úr hinu
nýja leikriti, sem hann hefir ný-
lokið við. Hann er á heimleið
með fjölskyldu sína eftir vetrar-
dvöl í Vín. I
Skákþingi íslands 1962 er nú
senn að ljúka og hefur sett
skemmtilegan svip á bæjarlífið.
Hefur verið teflt alveg yfir pásk-
ana af mikilli hörku og leikgleði
og áhorfendur ekki látið sig vanta.
Teflt er nú í þrem flokkum,
landsliðsflokki hinir tilskyldu 12
keppendur, meistaraflokki 19, ung-
lingaflokki 16. Það er ánægjuleg
og tímabær nýbreytni, að nú er
teflt f fyrsta skipti í unglingaflokki
á fsl. þingi. Hefur Æskulýðsráð
Reykjavíkur sýnt Skáksambands-
stjórninni þá velvild að lána ókeyp-
is húsnæði undir þá keppni. Mótið
er einnig merkilegt að því leyti, að
nú er í fyrsta skipti keppt full-
komlega í landsliðinu eftir hinum
nýju skáksambandslögum frá 1960,
þar sem einn keppir við alla og
allir við einn. Ánægjulegt er að
eini stórmeistarinn okkar, Friðrik
Ólafsson, skuli vera einn af þátt-
takendum. Setur hann sérstakan
svip á mótið með ljúfri og drengi-
legri framkomu.
Sérstaka athygli hefur vakið hin
slælega útkoma Inga R. Jóhanns-
sonar Norðurlandameistara I skák.
Var búizt sérstaklega við því í
byrjun mótsins, að hann yrði sá
eini, sem gæti veitt stórmeistar-
anum einhverja keppni, þar sem
hann tvívegis hefur verið fyrir of-
an hann á mótum hér. Meðal ann-
ars reiknaði mótstjórnin með bví
og raðaði keppendum þannig upp
að þeir tefldu úrslitaskákina í síð-
! ustu umferð.
En raunin varð nú önnur. Það
varð Björn Þorsteinsson, hinn ungi
og efnilegi meistari sem veitti Frið-
rik hörðustu keppnina. Eftir 8 um-
ferðir var Björn efstur með 100%
vinninga, en Fr. Ól. hafði 7% eftir
8 umf. þar sem hann náði jafntefli
í tapaðri stöðu móti Sigurði Jóns-
syni í annarri umferð. f níundu
umferð tapaði svo Björn sinni
fyrstu skák móti Gunnari Gunn-
arssyni, en Fr. Ól. vann sína á
móti Helga Ólafssyni. En í tíundu
umferð tefldu þeir svo saman Björn
; og Friðrik eiginlega úrslitaskákina
um efsta sætið (og rúmaði ekki
Breiðfirðingabúð áhorfendur). Frið-
rik vann þá skák og var þar með
búinn að tryggja sér efsta sætið
fyrir síðustu umferð. En Björn var
búinn að tryggja sér annað sætið
fyrir 3 síðustu umferðir mótsins.
Geri aðrir betur.
Snör handtök bjarga
mannslífí oa bátum
Sundmeistaramót íslonds
Sundmeistaramót íslands 1962
fer fram f Hveragerði 19. og 20.
maí n. k. Keppt verður í eftirtöld-
um greinum:
Fyrri dagur, kl. 15,00:
100 m. skriðsund, karla.
100 m. baksund, kvenn:
100 m. bringusund, karla.
100 m. skriðsund, drengja.
50 m. skriðsund, ítelpna.
200 m. baksund, karla.
200m. baksund, kvenna.
3 x 50 m. þrísund, drengja.
3x50 m. þrísund, kvenna.
4x100 m. fjórsund, karla.
Seinni dagur, kl. 10,00:
1500 m. frjáls aðferð karla.
Kl. 15.00:
100 m. flugsund, karla.
100 m. bringusund, drengja.
400 m. skriðsund, karla.
100 m. skriðsund, kvenna.
100 m. baksund, karla.
50 m. bringusund, telpna.
100 m. baksund, drengja.
200 m. bringsund, karla.
3 x 50 m. þrírund, telpna.
4 x 100 m. skriðsund, karla.
Þátttökutilkynningar skulu send-
ar Sundsambandi íslands, Reykja-
vik, fyrir 10. maf.
í sambandi við mótið verður
sundþing Sundsambands íslands
haldið og hefst það að lokinni
keppni, fyrri daginn.
í FYRRINÓTT kviknaði í vél-
bátnum Fjarðakletti frá Hafn-
arfirði, þar sem hann lá innan
um aðra báta í Grindavík, en
hann er gerður út þaðan. Áhöfn
in á vélbátnum Þorbimi varð
eldsins vör og slökkti hann fljót
lega og bjargaði þannig úr
bráðri hættu einum skipverja á
Fjarðakletti, Guðmundi Vigífús-
syni frá Hafnarfirði, og hindraði
að eldurinn læstist um bátinn
og tefldi þar með öðrum bátum
í hættu.
Fjarðaklettur er einn af Sví-
þjóðarbátunum, byggður 1947,
og um 100 lestir. Eldhús er á
þilfari fyrir aftan brúna og það
var í eldhúsinu, sem eldurinn
kviknaði, og mun hafa kviknað
í út frá olíukyndingu. M.b. Þor-
björn lá utan á Fjarðrtkletti, en
vegna þrengsla í höfninni, liggja
bátamir, einir 10 hver út af öðr-
urn, alls um 40—50 bétar, og er
skipverjar komu um borð að á-
liðinni nóttu til þess að fara i
róður, urðu þeir eldsir s í Fjarða
kletti varir, gripu k.raftmikla
dælu og hófust handa um að
slökkva eldinn og gekk það
greiðlega. Eldurinn v?r þá far-
inn að læsast um eldhúsið og
kominn í dyragættina, Var það
klætt með panel, en sðkum þess
hve vel gekk að slöfckva urðu
skemmdir miklu minri en ætla
mætti. Úr eldhúsinu <:r gangur
niður í káetu og maður, er þar
var, í stórhættu, ef ékki hefði
tekist að slökkva eldinn fljót-
lega.
Þegar Vísir hafði tal af Grinda
vík í morgun var Fjarðaklettur
farinn á veiðar, svo að ekki var
hægt að fá upplýsingar frá skip-
stjóranum, Ingólfi Karlssyni, eða
öðrum skipverjum, en hann mun
annars ekki hafa verið kominn
um borð, er eldsins varð vart.
Karlsefni
Framh. at 1. síðu.
sjómannaféiaginu, þegar þið kom-
uð í höfn?
— Jú, en það var lítið, þeir
spurðu bara hvort ég hefði beðið
skipshöfnina um að fara í túrinn
og ég svaraði þvi játandi. Annars
gerðist ekkert sérstakt í túrnum,
annað en að við fengum gott verð
fyrir aflann.
© •
SjálfstæðiskvennafélagiB HVOT
heldur fund kl. 8,30 annað kvöld í Sjálfstæðishúsinu. Fjármálaráðherra Gunliar Thorodssen flytur erindi um
skattamálin. Frjálsar umræður á eftir. Allar sjálfstæðis konur velkomnar. Mætið stundvíslega.
Kaffidrykkja. STJÓRNIN.