Vísir - 22.05.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 22.05.1962, Blaðsíða 1
52. árg. — Þriðjudagur 22. maí 1962. — 114. tbl. Ummæli forsætisráðherra VÍSIR átti í morgun tal við Ólaf Thors, forsætisráðherra, og Ieitaði álits hans á njósna- umleitan hins tékkneska er- indreka. — Forsætisráðherra sagði: „Ég þekki ekki frekar til þess rnáls, en fram kemur í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins. Ég tel hinsvegar að hér sé um alvarleg tíð- indi að ræða og fagna því að íslenzk stjórnar- völd hafa tafarlaust tek- ið mál þetta einörðum og réttum tökum“. Atlaga að öryggi þjóðarínnar Tilraun V. Stochl, hins tékkneska erindreka, til þess að inúta íslenzkum flugmanni til njósna fyrir Tékkóslóvakíu hér á landi hefir vakið undrun og gremju allra landsmanna. Lengi finnast þess engin dæmi að erlend ríki hafi gert tilraun til þess að fá íslendinga til þess að bregðast Iandi sínu og þjóð og gerast landráðamenn. Okkur íslendingum hefir löngum hætt til þess að telja land okkar of smátt til þess að erlend stórveldi teldu sér hag í því að reka hér undirmál og njósnir. En nu hefir annað komið á daginn. Málaleitan hins tékkneska erindreka er frekleg móðgun við sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar. Hún er einnig atlaga að frelsi hennar og öryggi. Tilgangur tékknesku tilmælanna um njósnir á íslenzkri grund er sannanlega sá að erlent ríki, sem býr við einræðisstjórn fái í hendur þær upplýsingar, sem gætu gert hugsanlegum árásaraðila árásina auðveldari. Varnarliðið á Keflavíkurvelli er trygging fyrir því að ekki verði á landið ráðist af erlendum ofbeldismönnum, og uppljóstranir um starf- semi þess höggva að rótum öryggis ríkisins. Sigurður Ólafsson flugmaður á heiður skilinn fyrir það á hvern hátt hann brást við málaleitan tékkneska erindrekans. Nota átti sér fjárhagserfiðleika Sigurðar, sém þó stöfuðu ein- ungis af svikum í verzlunarviðskiptum sem hann hafði átt við fyrrtalið ríki. Svo lúgalegur var allur málatilbúnaður hins erlenda ríkis. Tilraun hins erlenda kommúnistaríkis til njósna á íslandi sýnir íslendingum glögglega hvert er hugarfar kommúnista- ríkjanna til íslenzku þjóðarinnar og hve mikils þau virða sjálf- stæði hennar og öryggi. Það er hryggilegt að enn skuli vera til allstór hópur ís- lendinga, sem aðhyllist sömu þjóðfélagsskoðanir og hið er- íenda ríki, sem hér kemur við sögu. Vonandi verður þessi njósnatilraun til þess að opna augu margra í þeim hópi og gera þeim ljóst að framtíð þjóðarinnar og heill hennar er sízt borgið í höndum slíkra manna og þjóða. Þetta er holi njósnablýanturinn, sem Tékkinn Stochl afhenti Sigurði Ólafssyni og sýndi hvemig fela ætti njósnamiða í honum. Bjargað úr kröggunua ef ég vildi njósna Frásögn Sigurðar Ólafssonar flugmanns Fyrir nokkrum dögum gerðist sá atburður í húsi einu við Hamrahlíð hér í bænum, að heimili Sigurðar Ólafssonar flug manns, að tékkneskur maður kom í heimsókn til hans, færði honum fyrst að gjöf myndabók frá Tékkóslóvakíu og lítinn háls klút til konu hans. Litlu síðar fór tékkinn Vlastimil Stochl, að nefna það ur Vísis talaði við hann í gær- kvöldi. Ég varð sjokkeraður. Og þegar fréttamaðurinn talaði lítil lega við konu Sigurðar, mátti heyra á henni, að hún hafði varla trúað því að slíkt gæti gerzt hér á Islandi. Það var greinilegt að þeim hjónum hafði liðið illa vikutíma síðan þetta gerðist. Það er ekki skemmti- legt að komast í kast við svona, sagði Sigurður og ég er feginn við Sigurð, hvort hann vildi ekki taka að sér að afla upplýsinga því að þetta er afstaðið, um ferðir og tölu bandarískra herflugvéla á Keflavíkur-flug- vejli. — Ég varð furðu lostinn, sagði Sigurður, þegar fréttamað Dómsmálaráðuneytið ákvað uð lokinni rannsókn að vísa Tékkanum Vladimil Stochl úr landi og tók I.M. ‘jósmyndari Vísis þessa mynd af njósn- aranum í morgun, þegar hann var að stíga upp í flug- vél Flugfélagsins. Höfðu full- trúar lögreglu og útlendinga- eftirlitsins fylgt honum alveg upp að landgöngustiganum. & Notfærðu sér erfiðleika Eftir samtalinu virðist það ljóst, að hinn tékkneski flugmaður ætl- aði að notfæra sér efnahagsörðug- leika Sigurðar til þess að fá hann til að njósna fyrir kommúnista. Auk þess lofaði hann honum tals- verðum ávinningi, nefndi ýmislegt svo sem að hann fengi vinnu við þýðingar, ókeypis flugferð til Prag og að hann fengi lausn allra sinna mála í sambandi við bilanir á tékk- neskri flugvél, sem Sigurður á og hefur orðið honum þung í skauti fjárhagslega. •k Tékkneska óhappaflugvélin Þetta hófst í rauninni með þvf, Framh. á bls. 5 ! I I t t t l t i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.